Að þessu sinni fjalla
Skattatíðindi (pdf) um skattskyldu tryggingabóta, skattlagningu arðs og skattfrádrátt nýsköpunarfyrirtækja, lagabreytingatillögu KPMG sem tekin var til greina og álagningu opinberra gjalda 2010.
Ráðgjafarfyrirtækið Gekon og KPMG á Íslandi undirrituðu 23. júlí samkomulag um að KPMG taki að sér yfirgripsmikla greiningarvinnu á alþjóðlega jarðvarmageiranum. Er sú vinna hluti af kortlagningu jarðvarmaklasa á Íslandi. Með samningum gerist KPMG einn af aðalstyrktaraðilum verkefnisins.
Í þessu
43. tbl. Skattatíðinda (pdf) verður fjallað um skatt af vaxtagreiðslum úr landi, úrskurð yfirskattanefndar um ágreining vegna yfirfærslu einstaklingsrekstrar í einkahlutafélag og nýjar skattalagabreytingar.
Í þessu
3. tbl. Frétta er fjallað um endurskoðunarnefndir, rætt við Elínu Jónsdóttur forstjóra Bankasýslu ríkisins og fjallað um úttektir á fyrirtækjum
Sprotafyrirtækið Remake Electric hlaut Gulleggið 2010 með sigri í frumkvöðlakeppni Innovit. Alls voru um 300 hugmyndir skráðar til leiks. KPMG var einn af bakhjörlum keppninnar og óskar Remake Electric til hamingju með sigurinn.
22.3.2010
:
Erindin frá morgunverðarfundi um eignaskráningu og leigusamninga í opinbera geiranum
Síðastliðinn föstudag, 19. mars, var haldinn í húsakynnum KPMG morgunverðarfundur um eignaskráningu og leigusamninga í opinbera geiranum. Var fundurinn vel sóttur og margir sem hlýddu á hvort sem var á staðnum eða á netinu.
Hér má finna upptökur frá fundinum.
Þann 19. mars næstkomandi verður haldinn morgunverðarfundur í Borgartúni 27, 8. hæð um eignaskráningu og leigusamninga í opinbera geiranum. Dagskrá fundarins og skráningu má finna
hér.
1.2.2010
:
Glærur frá Skattaviku KPMG 26.-29. janúar sl.
Vikuna 26. - 29. janúar sl. voru haldnir fjórir morgunverðarfundir skattasviðs KPMG undir heitinu "Skattavika KPMG - fróðleikur með morgunkaffinu" . Þessir fundir voru mjög vel sóttir og voru rúmlega 150 manns á hverjum fundi. Glærur frá fyrirlesurum má nálgast
hér. Upptökur frá þessum fundi má svo nálgast á sama stað 4. febrúar nk.