Einn á gangi

Fjármálastofnanir

Um nokkurt skeið hefur KPMG lagt áherslu á þjónustu við fjármálafyrirtæki. Meðal við skiptavina KPMG á Íslandi eru tveir af þremur viðskiptabönkum og 19 af 24 sparisjóðum, auk nokkurra smærri verðbréfafyrirtækja og annarra lánastofnana. Einnig hefur KPMG annast endurskoðun og ráðgjöf fyrir stofnanir ríkisins í þessum geira.

Meðal annarra viðskiptavina í þessum atvinnugreinaflokki er eitt af þremur stærstu tryggingafélögum landsins og nokkur af stærri fasteignafélögum landsins.

Þjónusta við framangreinda aðila hefur gert kröfur um víðtæka þekkingu starfsmanna KPMG á innri starfsemi, lögum og reglum og eftirlitsumhverfi sem um starfsemina gilda.

KPMG býður þjónustu á sviði endurskoðunar sem gerir miklar kröfur um þekkingu á umhverfi fjármálafyrirtækja. Eðli starfseminnar vegna eru lög og reglur nokkuð frábrugðin þeim ramma sem gilda um aðrar tegundir rekstrar.

Frá og með 1. janúar 2005 verða félög sem eru skráð í Kauphöll Íslands að gera reikningsskil samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Líklegt er að önnur fjármálafyrirtæki en þau sem eru skráð í Kauphöllinni verði frá sama tíma að taka verulegt tillit til nýrra reikningsskilastaðla. KPMG hefur aðstoðað nokkra aðila við þennan undirbúning og er það meðal annars gert með stuttum kynningum fyrir starfsmenn þar sem farið er yfir helstu breytingar sem hinar nýju reglur hafa í för með sér.

Nánari upplýsingar:

Helgi F. Arnarson
Sími: 545 6074
Netfang: harnarson@kpmg.is

Sigurður Jónsson
Sími: 545 6217
Netfang: sigurdurjonsson@kpmg.is

 

 



 


KPMG Iceland