Gafflar í glasi

Neytendamarkaðir

KPMG hefur um árabil þjónustað fyrirtæki innan verslunar og iðnaðar og hefur á þeim tíma aflað sér þekkingar og reynslu innan starfsgreinarinnar bæði á sviði endurskoðunar, skattamála og á sviði fjármála- og rekstrarráðgjafar.

Þjónusta KPMG felur meðal annars í sér endurskoðun ársreikninga, yfirferð árshlutareikninga, ráðgjöf á sviði bókhalds og reikningshalds, áreiðanleikakannanir vegna eignakaupa, upplýsingar um lagabreytingar, skatta- og virðisaukaskattsráðgjöf ásamt því að veita lausnir á sviði fjármála og rekstrar. Á meðal viðskiptavina KPMG er breiður hópur minni og stærri fyrirtækja innan verslunar og iðnaðar. Þar á meðal eru stærstu verslunar- og iðnaðarfyrirtæki landsins sem hafa í sinni útrás nýtt sér alþjóðlegt net KPMG og þá alþjóðlegu sérfræðiþekkingu sem þar er í boði fyrir verslun og iðnað.

Nánari upplýsingar veita:

Símon Gunnarsson
Sími: 545 6311

Netfang: sgunnarsson@kpmg.is

Jón Eiríksson
Sími: 545 6054

Netfang: jeiriksson@kpmg.is

 

 



 


KPMG Iceland