Fréttir

Við undirritun styrktarsamnings KPMG og Geðhjálpar 15. desember 2009

KPMG styrkir Geðhjálp

15.12.2009

Við undirritun styrktarsamnings KPMG og Geðhjálpar 15. desember 2009Fulltrúar KPMG á Íslandi og Geðhjálpar hafa undirritað styrktarsamning um að KPMG gerist aðalstyrktaraðili Geðhjálpar næstu tvö árin. Styrkur KPMG nemur samtals 3 milljónum króna og vill félagið með því stuðla að eflingu geðheilbrigðis og gera Geðhjálp kleift að auka aðstoð við þá er kljást við geðræn vandamál.

"Á tímum samdráttar í íslensku samfélagi sem enginn fer varhluta af, ber svo við að KMPG hf. á Íslandi hefur ákveðið að leggja Geðhjálp til fjárstyrk að upphæð kr. 3 milljónir til næstu tveggja ára. Oft er þörf en nú er sérstök nauðsyn, að gæta að og bæta með fyrirbyggjandi hætti geðheilbrigði landsmanna sem er metnaður félagsins að styrkur sem þessi nýtist til. Vill Geðhjálp nota tækifærið og þakka fyrir þann góða hug sem að baki liggur og þann skilning sem felst í því að engin heilsa er án geðheilbrigðis," segir Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.

"Geðhjálp hefur á undangengnum árum lagt mikla áherslu á fræðslu um geðheilbrigðismál og að vinna gegn fordómum og þeirri þögn sem oft ríkir um geðræna kvilla. Þetta er stórt samfélagslegt vandamál sem Geðhjálp hefur haft forystu um að leysa. Okkur fannst mikilvægt að við kæmum með okkar framlag til eflingar því mannúðarstarfi sem þar er unnið," segir Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri KPMG.

Geðhjálp er hagsmunasamtök, stofnuð þann 9. október 1979. Þeim er ætlað að gæta hagsmuna þeirra sem þurfa eða hafa þurft aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra sem láta sig geðheilbrigðismál varða. Tilgangur félagsins er að bæta hag þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða svo og aðstandenda þeirra.

KPMG er alþjóðlegt net fyrirtækja en á heimsvísu þar sem starfa meira en 137 þúsund manns í 144 löndum. Saga KPMG á Íslandi spannar tæp 35 ár og starfsmenn eru um 225 talsins. Hjá KPMG starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á öllum sviðum viðskipta.

Nánari upplýsingar:
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri KPMG, sími 545 6000
Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, sími 510 1700

 

 


 


KPMG Iceland