Greinar
Ný tollalög
Ný tollalög nr. 88/2005 komu til framkvæmda 1. janúar 2006. Þykir rétt á þessum vettvangi að gera grein fyrir helstu nýjungum tollalaga. Frekari upplýsingar má síðan nálgast á heimasíðu tollstjóra, www.tollstjori.is.
- Hlutverk tollstjórans í Reykjavík 42. gr. – 43. gr.
Í núgildandi lögum er miklu betur gerð grein fyrir hlutverki tollstjórans í Reykjavík. Nú hefur sérstakt hlutverk tollstjórans í Reykjavík verið skilgreint betur en tollstjórinn í Reykjavík gegnir samræmingar- og stefnumótunarhlutverki í tollamálum á landsvísu líkt og ríkisskattstjóri gerir í skattamálum.
- Tollmiðlarar 47. gr. – 50. gr.
Hugtakið tollmiðlari er nýmæli. Starfsemi tollmiðlara er nú orðin leyfisskyld og er það fjármálaráðherra sem gefur út starfsleyfið. Í lögunum er gerður áskilnaður um hvaða skilyrði tollmiðlari þarf að uppfylla til að fá starfsleyfi. Ríkar kröfur eru gerðar til stjórnarmanna tollmiðlarafélags og daglegs stjórnanda, svo sem að þeir hafi óflekkað mannorð, séu búsettir á Íslandi eða í EES landi og hafi ekki hlotið dóm vegna brota á tollalögum o.fl. Tollmiðlari tekur til þeirra aðila sem taka að sér í atvinnuskyni að koma fram gagnvart tollyfirvöldum fyrir hönd inn- og útflytjenda. Þjónusta tollmiðlara getur verið frá því að veita ráðgjöf um einföld atriði í tengslum við gerð tollskýrslna til þess að koma fram fyrir hönd inn – eða útflytjenda gagnvart tollyfirvöldum við tollskýrslugerð og greiðslu aðflutningsgjalda.
- Greiðslufrestur á aðflutningsgjöldum lengdur 121. gr. – 122. gr.
Í tíð eldri tollalaga var aðilum á virðisaukaskattsskrá veittur mánaðar greiðslufrestur á tollum og virðisaukaskatti við innflutning á tilteknum vörutegundum. Með nýjum tollalögum hefur þessi styttri greiðslufrestur verið lengdur í 2 mánuði og því gildir ein almenn regla um uppgjörstímabil tolls og virðisaukaskatts og hún er óháð þeirri vörutegund sem flutt er inn hverju sinni. Óheimilt er þó að veita greiðslufrest á aðflutningsgjöldum þegar um neyðarleyfi eða bráðabirgðaafgreiðslu er að ræða. Uppgjörstímabil tolla og annarra gjalda verða tveir mánuðir nema annað sé ákveðið í öðrum lögum.
- Kæruleið 118. gr.
Nú eru allir úrskurðir tollstjóra kæranlegir til ríkistollanefndar en áður sættu sumir úrskurðir tollstjóra málskoti til fjármálaráðuneytisins. Með breytingunni eru kæruleiðir tollalaga einfaldaðar verulega til hagsbóta fyrir þá sem vilja nýta sér heimild til stjórnsýslukæru til æðra stjórnvalds. Úrskurðir ríkistollanefndar eru endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi. Ríkistollanefnd hefur 60 daga í stað 30 daga til að kveða upp úrskurð sinn.
- Tollvörugeymslur 91. gr. – 95. gr.
Margs konar nýmæli eru sett fram í þeim ákvæðum um tollvörugeymslur. Samkvæmt núgildandi tollalögum er heimilt að geyma saman tollafgreiddar og ótollafgreiddar vörur í tollvörugeymslu en í eldri lögum var ekki gert ráð fyrir blöndun tollafgreiddra og ótollafgreiddra vara í tollvörugeymslum. Ítarleg ákvæði eru um hvernig sá sem rekur geymslusvæðið eigi að tilkynna um flutning vöru.
Eðli málsins samkvæmt bíður það fjármálaráðherra að gefa út nýjar reglugerðir sem útfæra þær nýjungar sem koma fram í lögunum. Ekki hafa enn verið gefnar út reglugerðir en samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu er unnið að því.
