Sjónarhóll

Sjónarhóll er vettvangur faglegrar umræðu fyrir íslenskt atvinnulíf. KPMG á Íslandi hefur nú gefið út Sjónarhól í nokkur ár og gegnir ritið því hlutverki að miðla þekkingu og reynslu úr íslensku og alþjóðlegu viðskiptalífi. Greinarskrif í ritinu hvíla fyrst og fremst á herðum þeirra sérfræðinga sem starfa hjá KPMG á Íslandi. Jafnframt verður leitað fanga í alþjóðlegan þekkingarbrunn KPMG. Efnistök munu verða með ýmsum hætti en ávallt verður reynt að horfa með gagnrýnum augum á landslag viðskiptalífsins.

Nánari upplýsingar veitir:

Ritnefnd
Sími: 545 6000

Netfang: sjonarholl@kpmg.is


Sjónarhóll 7. tbl.

Sjonarholl 7 tblSjöunda tölublað Sjónarhóls, tímarits KPMG, er komið út. KPMG Endurskoðun hf. fagnar 30 ára afmæli sínu um þessar mundir og tekur efni blaðsins að þessu sinni nokkuð mið af þeim tímamótum í sögu félagsins.

Hér er hægt að skoða blaðið á pdf formi.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland