Ein að vinna á tölvu undir glerþaki

Endurskoðun og reikningsskil

Það er markmið KPMG að vera leiðandi á sviði reikningsskila og endurskoðunar á Íslandi.

Helstu verkefni endurskoðunarsviðs KPMG á Íslandi eru:

  • Áritanir á ársreikninga, árshlutareikninga og önnur staðfestingavinna. (Attestation service)
  • Reikningsskilaleg aðstoð
  • Ráðgjöf vegna rekstrar, innra eftirlits o.fl. (Advisory service)

Örar breytingar á öllum sviðum samfélagsins bæði innanlands og á alþjóðavettvangi gera miklar kröfur til starfsfólks okkar, aðferðafræði og kerfa um að unnt sé að bregðast skjótt við breytingum til að tryggja viðskiptavinum okkar bestu fáanlega þjónustu á hverjum tíma.

Endurskoðunaraðferðir KPMG eru í stöðugri þróun í takt við breytingar í umhverfi og þá áhættu sem rekstur viðskiptavina okkar stendur frammi fyrir hverju sinni. Sérhæfing eftir atvinnugreinum er vaxandi innan KPMG en með slíkri sérhæfingu reynum við að tryggja að viðskiptavinir okkar hafi í höndum þær upplýsingar sem best eru til þess fallnar að byggja ákvarðanir á.

Auður Þórisdóttir
Sími 545 6245

Netfang: athorisdottir(hjá)kpmg.is

 

 



 


KPMG Iceland