1. tbl. B27

Forsíða 1 fréttablaðs fyrirtækjasviðs

Fréttablaðinu er ætlað til þess að koma á framfæri upplýsingum af margvíslegum toga sem tengist viðskiptum og athafnalífi. Birtar verða upplýsingar úr áhugaverðum skýrslum sem KPMG gefur út, greinar og annað efni sem gagnast lesendum auk frétta af starfsemi KPMG. Vonandi hafa lesendur gagn og nokkuð gaman af.

 Hér má finna greinar og fréttir sem birtust í fyrsta tölublaði B27.

Hver er kostnaðargrunnurinn hjá þínu fyrirtæki?

Fjárfestingar í fasteignageiranum færast til

Dubai dýrast - ódýrast í Suður-Afríku (golf)

Suzuki umboðið skiptir um eigendur

Á vormánuðum var gengið frá sölu Suzuki umboðsins ehf. til nýrra eigenda. Suzuki umboðið er rótgróið fyrirtæki í sölu mótorhjóla, fjórhjóla, utanborðsmótora auk varahluta og sérhæfðs fatnaðar. Kaupandi eru Suzuki bílar hf. Fyrirtækjasvið KPMG hafði umsjón með sölunni allt frá vinnslu kynningargagna til frágangs endanlegs kaupsamnings. Kaupverð er trúnaðarmál milli aðila.

Nýir eigendur kaupa Einar Farestveit og Co. hf.

Hið rótgróna fyrirtæki Einar Farestveit og Co. hf. skipti um eigendur í upphafi árs. Einar Farestveit hefur skapað sér nafn sem umboðsaðili fyrir vandaðar vörur á sviði heimilis- og hljómtækja, en félagið er einnig með umboð fyrir margvíslega öryggisbúnað og lækningatæki. Félagið var stofnað 1964 af Einari Farestveit og fjölskyldu og hefur verið hennar allar götur síðan. Fyrirtækjasvið KPMG hafði umsjón með sölunni og sá um vinnslu kynningargagna, viðræður við áhugasama kaupendur, frágangs endanlegs samnings og öðrum tengdum atriðum. Kaupendur er SM Fjárfestingar ehf. sem hyggjast reka félagið áfram með svipuðum áherslum og verið hefur. Kaupverð er trúnaðarmál á milli aðila.

Breytingar og stækkun Mynd af höfuðstöðvum KPMG í Borgartúni

Nokkrar breytingar standa nú yfir í höfuðstöðvum KPMG í Borgartúni 27. Verið er að taka undir starfsemi félagsins stærstan hluta þriðju hæðarinnar. Eftir breytingar mun starfsemi KPMG vera á fyrstu, fimmtu, sjöttu og sjöundu hæð auk þeirrar þriðju. Breytingarnar eru nauðsynlegar vegna vaxtar félagsins og til að geta boðið viðskiptavinum upp á enn betri þjónustu. Fyrirtækjasvið mun flytja á þriðju hæðina sem verður skipulögð með starfsemi sviðsins í huga.

 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 

 


KPMG Iceland