2. tbl. B27

Hér má finna greinar og fréttir sem birtust í 2. tbl. B27 - fréttablaði fyrirtækjasviðs.
Áhrif breyttra umhverfisþátta á rekstrarumhverfi fyrirtækja
Hvers virði eru þínar upplýsingar?
Kennitölugreiningar, algengur misskilningur (V/I og Tobin's Q hlutföll)
Ofsóknarbrjálaður glæpon sem stjórnandi
Í nýútkomnu tímariti KPMG International, Agenda (pdf), er meðal annars efnis grein um guðföðurinn Michael Corleone sem stjórnanda. Þar er sett fram sú skoðun að þau vandamál sem mættu honum í daglegri stjórnun á glæpaveldi sínu séu alls ekki svo ólík þeim sem margir stjórnendur glíma við um heim allann. Mafían var skipulögð með svipuðum hætti og mörg fyrirtæki þar sem allir þræðir komu saman á toppnum og ákvarðanataka öll mjög miðstýrð. Guðfaðirinn gat tekið á þeim vandamálum með "skilvirkari" og siðlausari hætti. Hann gat til að mynda treyst því að ákvarðanir hans væru framkvæmdar – ef ekki mátti viðkomandi búast við að á honum yrði framkvæmd aftaka! Um leið leiddi þessi stjórnunarstíll til þess að undirmenn voru býsna tregir að mótmæla yfirmanninum, afleiðingarnar ef honum líkaði ekki ráðin gætu verið mjög afgerandi. Af þeim sökum einangraðist Corleone á toppnum og varð umkringdur jámönnum. ,,Starfslok" hjá Mafíunni eru með öðrum og ruddalegri hætti en annars staðar í atvinnulífinu. Guðfaðirinn þurfti ekki að glíma við kostnað vegna uppsagna og breytinga sem getur verið umtalsverður, hjá honum eru starfslokin mjög afgerandi. KPMG er náttúrulega ekki að mæla með því að íslen
skir stjórnendur tilenki sér starfsaðferðir Corleone og þá sérstaklega ekki "mannauðsstjórnun" hans. Í greininni er aftur á móti notað nýtt og skemmtilegt sjónarhorn á dagleg viðfangsefni stjórnenda. Hægt er að nálgast greinina í held sinni hér.
Al Pacino í hlutverki Michael Corleone
Hæð borgar sig!
Í tengslu
m við rannsóknir á bók sinni ,,Blink: The Power of Thinking Without Thinking," komst Malcom Cladwell að ýmsu athyglisverði sem ekki kom efninu endilega við. Í rannsókninni komst hann að því að stjórnendur fyrirtækja eru hærri en meðalmaðurinn. Rúm 30% af forstjórum í USA eru yfir 1,88 m., aðrar rannsóknir sýna svipaðar niðurstöður, eða að yfir 90% af stjórnendum eru yfir meðalhæð. Og stærðin borgar sig. Sá sem er 1,83 m. hefur að meðaltali 5.525 bandaríkjadölum meira í árslaun en sá sem er 1,65 m. Sem má umreikna í 306,94 dollara á hvern sentimetra. Spurningin sem eftir stendur er; ætti að vera sérstakur hæðartengdur skattur?
