B27 - fréttablað fyrirtækjasviðs
KPMG í
Bretlandi hefur tekið saman upplýsingar um kaupverð á leikmönnum i þremur efstu deildum fótboltans þar í landi. Í upplýsingabanka KPMG eru upplýsingar úr kaupsamningum vegna yfir 2500 knattspyrnumanna frá miðju ári 2003 til 1. sept. 2008. Þessa gangasöfnun er meðal annars hugsuð til að aðstoða stjórnendur félaga að meta einstök kaup á leikmönnum, koma í veg fyrir peningaþvætti og hún er einnig lögð til grundvallar þegar upp koma deilumál í tengslum við kaup og sölu leikmanna.
Meðal þeirra upplýsinga sem fram koma má nefna; framherji kostar að meðaltali 10 milljónir punda en markvörðurinn 2,4 milljónir punda, varnarmenn eru á 4,5 milljón punda og miðjumaðurinn á 4,4 milljónir. Það er sem sagt hægt að fá tvo varnar- eða miðjumenn fyrir einn framherja, nú eða 4 markverði!
Aldur skiptir máli, meðalverð á leikmönnum 25 - 28 ára eru 6,8 milljónir punda, en um leið og þeir verða þrítugir falla þeir verulega i verði, meðalverð leikmanna á aldrinum 29 - 31 árs er 3,4 milljónir punda.
Fjölmargt fleira áhugavert fyrir knattspyrnuáhugamenn og aðra kemur fram í skýrslunni sem hægt er að fá í heild sinni hér (eða með því að senda póst hingað)
