Business Performance Services
Business Performance Services - Árangursstjórnun fyrirtækja
Árangursstjórnun fyrirtækja felur í sér greiningu og mati á áhættu og tækifærum til að styrkja skipulagsheildina til lengri tíma. Rekstur fyrirtækja, stofnana og sveitafélaga krefst stöðugrar endurskoðunar. Með því að innleiða aðferðafræði árangurstjórnunar er hægt að stuðla að betri og bættri þjónustu. KPMG býður uppá þjónustu til að bæta rekstur með eftirfarandi þjónustuleiðum:
- Breytingastjórnun
- Endurmat á kostnaðargrunni
- Áætlanagerð
- Ferlagreining
- Viðskiptaáætlanir
- Fjár- og áhættustýring
Með því að þróa mælikvarða og viðmið sem endurspegla stefnu og framtíðarsýn skipulagheildarinnar, er lagður grunnur að meiri hæfni og getu hennar til lengri tíma. Með því að þróa þessa mælikvarða skapast vitund og þekking innan skipulagsheildarinnar sem ýtir henni að settu markmiði. Fjárhagslegir eða ekki fjárhagslegir mælikvarðar eru ekki aðalatriðið. Mælikvarði getur verið án fjárhagslega viðmiða. Aðalatriðið er að allir innan skipulagsheildarinnar séu meðvitaðir hverjir lykilmælikvarðanir séu. KPMG leggur metnað sinn að bæta hæfni skipulagsheildar og skiptir ekki máli hvort það er fyrirtæki, stofnun eða sveitafélag.
Nánari upplýsingar veitir:
Arnar Bjarnason
Sími: 545 6181
Netfang: abjarnason(hjá)kpmg.is
