Fasteignaráðgjöf
Á alþjóðavísu hafa fasteignir þróast sem raunverulegur fjárfestingakostur. Í dag er fjármagn orðið alþjóðlegra og margir fjárfestar og sjóðstjórar farnir að fjárfesta á alþjóðavísu. Þrátt fyrir það eru fasteignir bundnar staðbundnum lögum, reglum og sköttum.
Sérþekking KPMG á innlendum markaði og hin alþjóðlegu tengsl eru ástæðan fyrir því að fjárfestar leita til okkar í auknum mæli. KPMG getur aðstoðað þig bæði vegna eignarhalds fasteigna og vegna þróunarverkefna með fasteignir.
KPMG býður viðskiptavinum ráðgjöf vegna staðbundinna verkefna, verkefna á landsvísu sem og heimsvísu. KPMG hefur unnið verkefni fyrir skráð og óskráð eignarhaldsfélög, fjárfestingafélög, sveitafélög og opinberar stofnanir.
Sérfræðingar okkar í endurskoðun, skattaráðgjöf og fyrirtækjaráðgjöf leiða þig á skilvirkan hátt í gegnum fjárfestingarferlið.
Frekari upplýsingar um þessa þjónustu má nálgast hérna.
