Fjármögnun

Það er mikilvægt fyrir stjórnendur fyrirtækja að fá yfirsýn yfir þá fjármögnunarmöguleika sem standa þeim til boða og gera þeim kleift að meta hvað hentar stefnu og markmiðum fyrirtækisins best. KPMG býður þjónustu í tengslum við hvers konar fjármögnun fyrirtækja, sem felst í óháðu mati á mögulegum fjármögnunarleiðum og er þjónustan sniðin að þörfum hvers fyrirtækis fyrir sig.

Fyrirtæki sem eru að íhuga nýjar lántökur eða endurfjármögnun eldri lána eru yfirleitt í góðum tengslum við fjármálastofnanir. Þessar sömu fjármálastofnanir eru jafnan viljugar að veita fyrirtækjum ráðgjöf þeim að kostnaðarlausu um eigin fjármálaafurðir og er ráðgjöf þeirra því ekki endilega byggð á óháðu mati um hvað hentar fyrirtækinu best.

Stjórnendur fyrirtækja þurfa meðal annars að velta upp eftirfarandi spurningum:

  • er núverandi fjármagnsskipan sú hagstæðasta fyrir fyrirtækið;
  • er núverandi efnahagsreikningur að drífa fyrirtækið áfram eða halda aftur af því;
  • er fjármögnunin að gefa fyrirtækinu nægilegt svigrúm til að komast í gegnum erfið tímabil?

KPMG býður viðskiptavinum sínum óhlutdræga ráðgjöf á fjármögnunartilboðum fjármálastofnana og leggur mat á áhrif mismunandi fjármögnunarleiða á fyrirtækið.

Það geta verið margar ástæður fyrir því að fyrirtæki leiti sér ráðgjafar varðandi fjármögnun:

  • Til að fara yfir og meta fjármögnunar tilboð frá fleiri en einni fjármálastofnun
  • Þörf á auknu fjármagni vegna breyttrar rekstrarstefnu
  • Þörf á að dreifa fjármögnun fyrirtækisins
  • Fyrirtækjakaup fjármögnuð með lánum
  • Endurfjármögnun eldri lána
  • Aukning skuldsetningu með veði í fasteignum eða kröfum

Fyrirtækjasvið KPMG býður viðskiptavinum sínum eftirfarandi þjónustu á sviði fjármögnunar:

  • Aðstoð við að koma auga á þá fjármögnunarstefnu sem best hentar þörfum viðskiptavinarins
  • Óháða og óhlutdræga ráðgjöf
  • Óháða endurskoðun á þeim fjármálaafurðum sem fyrirtækinu standa til boða
  • Greining á fjármögnunarmöguleikum
  • Mat á lántökukjörum og lántökuskilyrðum og aðstoð við samningagerð lánasamninga
  • Aðstoð við öflun hlutafjár
  • Uppsetning og mat á hagkvæmnikönnunum og viðskiptaáætlunum með tilliti til fjármögnunar
  • Endurskipulagning á núverandi fjármagnsskipan og skulda samsetningu
  • Líkanagerð með tilliti til fjármögnunar
 

 



 


KPMG Iceland