Samrunar og yfirtökur

Ör þróun og umbreyting viðskiptalífsins kallar á sífelldar breytingar á rekstri fyrirtækja. Yfirtaka og samrunar fyrirtækja hafa á undanförnum árum orðið æ algengari og er mikilvægt tæki til að framfylgja stefnu fyrirtækja. Að baki liggur hvati að styrkja markaðsstöðu, auka hagræðingu í rekstri og ná fram samlegðaráhrifum til að auka arðsemi og nýtingu fjármagns.

Hvatinn til lengri tíma er að mestu leyti fólginn í sameinaðri þekkingu, tækni, viðskiptavild, þjónustu, vörum og mörkuðum. Í flestum tilvikum leiðir aukin stærð fyrirtækis til forskots í samkeppni, gefur tækifæri á ódýrara lánsfjármagni og þjónustu á breiðara sviði. Að mörgu er að huga í slíku ferli og til að ná sem bestum árangri skiptir miklu máli að undirbúningur og framkvæmd samruna eða yfirtöku sé vandaður og unnin af fagmennsku og þekkingu.

Fyrirtæki í kaup- og söluferli þurfa að marka sér stefnu og setja sér haldbær markmið, velja réttan yfirtöku- og/eða samrunaaðila og fylgja því eftir með vel útfærðri framkvæmdaáætlun. Í öllum slíkum skrefum þarf trausta aðstoð og ráðgjöf.

KPMG aðstoðar við m.a. greiningu á kaup- og sölu tækifærum, veitir ráðgjöf um stofnun fyrirtækja auk greiningar á markaðstækifærum og veitir ráðgjöf um öflun hlutafjár og samruna fyrirtækja.

Kaup fyrirtækja

  • Greining tækifæra og/eða ráðgjöf við val á vænlegum kauptækifærum
  • Gagnaöflun og verðmat fyrirtækis
  • Kauptilboðsgerð
  • Kynningargögn og kynning fyrir fjármálastofnunum og fjárfestum
  • Samningsgerð og tengdur skjalafrágangur
  • Aðstoð við að ná hagstæðri fjármögnun
  • Umjón og gerð áreiðanleikakannana

Sala fyrirtækja

  • Gagnaöflun um fyrirtækið og upplýsingar frá stjórnendum
  • Verðmat auk greiningar á viðkomandi markaði
  • Uppsetning á söluferli
  • Kynningargögn útbúin fyrir fjárfesta
  • Finna fjárfesta og leiða að samningaborðinu
  • Leiða samningaferli og meta tilboðin út frá markmiðum seljenda
  • Aðstoð við nauðsynlegan skjalafrágang
  • Umsjón og gerð áreiðanleikakannana

Samrunar fyrirtækja

  • Aðstoð við að leiða tvö félög saman
  • Markmið með samruna útlistuð ásamt kostum og göllum
  • Mat á skiptihlutföllum
  • Aðgerðaráætlun
  • 100 daga áætlun
  • Kynning fyrir starfsmenn og aðra hagsmunaaðila

Öflun hlutafjár

  • Gerð viðskiptalíkans og kynningargagna
  • Undirbúningur kynningarog söluferlis
  • Stýring kynningar- og söluferlis og formlegar viðræður við áhugasama fjárfesta
  • Eftirlit með áreiðanleikakönnun og uppsetning endanlegra samninga

Nánari upplýsingar veitir:

Benedikt K. Magnússon
Sími: 545 6236

Netfang: bmagnusson(hjá)kpmg.is

Flosi Eiríksson
Sími: 545 6173

Netfang: feiriksson(hjá)kpmg.is

 

 



 


KPMG Iceland