Verðmat
Það færist sífellt í aukana að stjórnendur og eigendur fyrirtækja sækist eftir verðmatsþjónustu í tengslum við stjórnun fyrirtækja. Ástæðan getur m.a. verið sú að þessir aðilar vilji fá dýpri skilning á hver hin raunverulegu verðmæti rekstrarins eru og til að geta tekið betri og upplýstari ákvarðanir.
Ýmsar ástæður geta leitt til þess að stjórnendur og eigendur fyrirtækja þurfa að láta verðmeta fyrirtækið í heild sinni, rekstrareiningar innan þess eða einstakar eignir. Meðal ástæðna til að kalla eftir verðmati getur verið krafa um nákvæmni í reikningsskilum, undirbúningur á sölu hlutabréfa eða til að átta sig á raunvirði eigna vegna hagræðingar í rekstri.
Fyrirtæki geta verið á mikilvægum tímamótum í rekstri vegna undirbúnings á yfirtöku, uppskiptingu fyrirtækisins eða af öðrum ástæðum og þarf því skýra mynd af raunvirði fyrirtækisins. Það getur því skipt miklu máli að fá óháð og hlutlaust mat sérfræðinga.
Sérfræðingar KPMG eru með haldgóða og fjölbreytta menntun og bakgrunn frá ýmsum sviðum atvinnulífsins. Þar að auki nýtur fyrirtækjasvið KPMG stuðnings frá verðmatssérfræðingum um allan heim með mikla þekkingu á sínu sviði og sérhæfingu í atvinnugreinum.
Fyrirtækjasvið býður viðskiptavinum sínum eftirfarandi verðmatsþjónustu:
Almennt verðmat
- Verðmat á fyrirtækjum fyrir eigendur eða stjórnendur
- Mat á fyrirtækjum í tengslum við kaup og sölur
- Mat á viðskiptum milli tengdra aðila
Sérhæft verðmat
- Mat á skuldsetningu vegna yfirtöku (LBO)
- Hlutafjársöfnun ? mat á útboðsgengi
- Hagkvæmni- og fýsileikakannanir
- Mat á endurfjármögnun
- Mat á efnislegum og óefnislegum eignum svo sem fasteignum, vörumerkjum, einkaleyfum, nýtingarrétti auðlinda og viðskiptasamböndum
Verðmat tengt endurskoðun (IFRS)
- Mat á fjárfestingaeignum skv. IAS 40 á markaðsvirði
- Virðisrýrnunarpróf á eignum metnum á gangvirði skv. IAS 36
- Mat á fjáreignum og fjárskuldum skv. IAS 39
- Mat á kaupréttum skv. IFRS 2
Úthlutun kaupverðs (Purchase Price Allocation)
- Mat á sjóðskapandi einingum og óefnislegum einingum
- Endurmat á eignum
- Úthlutun yfirverðs
Skattalegt verðmat
- Mat á viðskiptum milli tengdra aðila - milliverðlagning
Líkanagerð
- Uppsetning á sérsniðnum verðmatslíkönum
Hér má nálgast einblöðung um verðmatsþjónustu KPMG.
