Corporate Restructuring

Stór hluti daglegs rekstrar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga snýst um að leita leiða til að bæta þjónustu/vöru sína og um leið hagræða í rekstri og hámarka nýtingu þess fjármagns sem liggur þar að baki. Hvort sem um er að ræða framleiðslufyrirtæki, verslanir, veitufyrirtæki eða sveitarfélög, þá er það krafa samfélagsins að gera betur í dag en í gær.

Hjá KPMG starfar öflugt teymi starfsfólks sem býr yfir sérþekkingu og reynslu úr flestum greinum atvinnulífsins. Á fyrirtækjasviði eru sérfræðingar sem hafa sérhæft sig í að stýra breytingaferli til að auka hæfni rekstrar- og þjónustueininga, en hluti af okkar þjónustu felst einmitt í því að koma að fjárhagslegri og rekstrarlegri endurskipulagningu.

Eftirfarandi þættir eru hluti af ferli endurskipulagningar:

  • Stöðugreining; úttekt á rekstri og efnahagi
  • Tillögur að breytingaferli
  • Framkvæmda- og aðgerðaáætlun
  • Fjárhagsskipan; áhersla er lögð á að bæta fjárhagsskipan til lengri tíma
  • Ferlagreining; farið yfir alla ferla og lögð áhersla á að einfalda þá eins og kostur er
  • Áætlanagerð, arðsermisútreikningar; farið yfir alla framlegðar- og kostnaðar útreikninga. Gerð rekstraráætlun þar sem fram kemur yfirlit yfir rekstur, efnahag og sjóðstreymi
  • Sjóðs- og skuldastýring; með forsendur rekstraráætlunar er lagður grunnur að allri sjóðs- og skuldastýringu. Markmiðið er að lágmarka vaxtakostnað og tryggja sem öruggasta stöðu fjármagns á álagstoppum.

Það er ekki nóg að fara í ofangreinda þætti ef starfsmenn eru ekki tilbúnir til þess. Það er þekkt að ef starfsfólk sé ekki ánægt, eru líkur á að viðskiptavinur sé það ekki heldur sem getur leitt af sér minni veltu eða lægra þjónustustigs og þar með verri nýtingu fjármagns. Því leggur KPMG mikla áherslu á að virkja starfsfólk á jákvæðan hátt og þar með tryggja að breytingaferlið virki sem skyldi.

Aðstoð við fyrirtæki í rekstrarerfiðleikum

KPMG hefur reynslu í að koma að mál um þar sem fyrirtæki standa höllum fæti eða geta ekki staðið undir skuldbindingum gagnvart lánardrottnum og býður uppá sérhæfða þjónustu á þessu sviði. Í þessu samhengi má nefna eftir farandi þjónustu afurðir:

  • Tímabundin aðstoð við stjórnun
  • Framkvæmdastjórnun
  • Áhættumat
  • Stýring á gjaldþrotameðferð
  • Nauðasamningar við kröfuhafa
  • Endurmat og sölumeðferð eigna
  • Fjárhagsleg endurskipulagning
  • Hlutafjársöfnun
  • Endurreisn, verðmat, sala eða sameining

Þegar fyrirtæki hefur ekki lengur fjárhagslega burði til að standa undir frekari starfsemi er mjög mikilvægt að bregðast hratt við. Fjármögnunaraðilar og hluthafar eru í sumum tilvikum ekki upplýstir um stöðu mála. Þetta þýðir að það er mjög mikilvægt að vinna hratt og örugglega þegar svo ber undir og þar með að auka líkur á því að hægt sé að bjarga eignum og hugsanlega endurreisa fyrirtækið.

EndurskipulagningHér má nálgast yfirlit yfir þessa þjónustu á pdf formi.

Nánari upplýsingar veitir:

Arnar Bjarnason
Sími: 545 6181

Netfang: abjarnason(hjá)kpmg.is


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland