Financial Risk Management

Virk áhættustýring dregur úr áhrifum utanaðkomandi sveiflna og áfalla á mörkuðum á fjárhagsstöðu og rekstur fyrirtækisins. Það er því hagur fyrirtækja, hvort sem um er að ræða fjármálafyrirtæki eða almenn rekstrarfélög, að vera meðvituð um þá áhættuþætti sem þau kunna að vera óvarin fyrir og setja sér stefnu í áhættustýringu á grundvelli þess.
KPMG aðstoðar hvers konar fyrirtæki, sjóði og stofnanir við að skilgreina, meta, stýra, greina frá og lágmarka áhrif óvissuþátta í rekstri þeirra.
KPMG veitir þjónustu á eftirfarandi sviðum:
Markaðsáhætta
Flest íslensk fyrirtæki hafa á undanförnum árum þurft að glíma við gjaldmiðlaáhættu vegna örra breytinga í gengi krónunnar. KPMG veitir ráðgjöf vegna stýringar áhættu í rekstri fyrirtækja sem stafar af verðbreytingum á markaði. Þetta er til dæmis gjaldmiðlaáhætta, hlutabréfaáhætta, vaxtaáhætta, orkuverðsáhætta eða annað sem gengur kaupum og sölum á opnum markaði.
Útlánaáhætta
KPMG veitir ráðgjöf varðandi mælingu og stýringu útlánaáhættu. Útlánaáhætta getur verið í formi skuldabréfaeignar og/eða viðskiptakrafna. Bæði er veitt mat á einstökum skuldurum og/eða stýringu útlánasafna.
Verðlagning á afleiðum
Framboð fjármálaafurða hefur aukist gríðarlega undanfarin ár. Afleiður eru notaðar með víðtækari hætti og því hefur þekking á verðlagningu þeirra aldrei verið mikilvægari en nú. KPMG getur veitt verðmat á afleiðum og/eða hannað líkön til notkunar við afleiðuverðlagningar, eftir þörfum viðskiptavinarins.
Áhættuvarnarreikningsskil
Við áhættuvarnir með afleiðum skapast oft sveiflur í ársreikningum félaga, sem geta gefið ranga mynd af raunverulegri stöðu félagsins. En markmiðið með beitingu áhættuvarnarreikningsskila er að draga úr sveiflum í rekstri vegna áhættuvarna og að rekstrarreikningur gefi gleggri mynd af rekstri félagsins.
Áætlanagerð
Mikilvægt er að stjórnendur geri sér grein fyrir áhættuþáttum þegar kemur að áætlanagerð. Góð meðvitund stjórnenda um þær hættur sem fyrirtækið stendur frammi fyrir auðveldar ákvarðanatöku, auðveldar stefnumörkun í áhættustýringu og styttir viðbragðstíma við breytingum í ytra umhverfi félagsins.
Jafnframt veitir fyrirtækjasvið KPMG ráðgjöf á eftirfarandi sviðum:
- Seljanleikaáhætta (e. Liquidity risk)
- Þjónusta tengd regluvörslu (e. Regulatory services)
- Tölulegt mat og stýring á áhættum verðbréfasafna
- Áhættustýring í viðskiptum (e. Risk management in transactions)
- Fjármála- og fjárstýring
- Verkferlar í eignastýringu
Helstu þættir þjónustunnar
Þjónustulínan býður upp á mikinn sveigjanleika og auðvelt er að miða hana að þörfum hvers og eins. Almennt má þó skipta henni upp í 3 stig:
- Mat: Góð áhættumeðvitund gerir stjórnendur betur í stakk búna til að ákvarðanatöku er varðar áhættustýringu. Dregin er upp mynd af hversu mikil áhætta er í rekstri og efnahag viðskiptavinarins og á hvaða sviðum hún liggur.
- Stýring: Ráðgjöf um áhættustýringu og leiðir í þeim efnum. Til dæmis um val á afleiðum og verðlagningu viðkomandi afleiðna.
- Líkön: Val og hönnun á líkönum til mælingar og stýringar áhættunni. Smíðum jafnframt líkön til afleiðuverðlagningar.
KPMG veitir þjónustu á einstökum stigum eða öllum, eftir þörfum viðskiptavinarins.
Hér má nálgast einblöðung um áhættustýringarþjónustu KPMG.
Nánari upplýsingar veitir:
Benedikt K. Magnússon
Sími: 545 6263
Netfang: bmagnusson(hjá)kpmg.is
