Endurskoðunarnefnd
Ábyrgð og skyldur

Á árinu 2008 voru gerðar breytingar á lögum nr. 3/2006 um ársreikninga þar sem bætt var við nýjum kafla um endurskoðunarnefnd. Í athugasemdum við lagafrumvarpið sem lagt var fram samhliða frumvarpi til nýrra laga um endurskoðendur stendur;
"Endurskoðunarnefndin er eftirlitsnefnd og með því að kveða á um skipun slíkrar nefndar er leitast við að tryggja gæði ársreikninga og annarra fjármálaupplýsinga viðkomandi einingar og óhæði endurskoðenda einingarinnar."
Endurskoðunarefndir eiga sér langa sögu og hefur hlutverk þeirra þróast mikið síðustu ár og meiri kröfur gerðar um störf þeirra. Bandaríkin hafa verið framanlega í því að aðlaga störf nefndarinnar að breyttu umhverfi og einnig að þeim kröfum sem almenningur gerir til þeirra félaga sem lögin ná til. Evrópusambandið hefur einnig gert kröfu um stofnun endurskoðunarnefnda og því má segja að umrædd lagasetning sé bein afleiðing af auknum kröfum í þjóðfélaginu.
Frekari upplýsingar um hlutverk endurskoðunarnefndar má finna hér (pdf).
Nálgast má lögin hér (vefur Alþingis).
Frekari upplýsingar veitir:
Helga Harðardóttir
Sími: 545 6204
Netfang: hhardardottir(hjá)kpmg.is
