Maður í fundarherbergi með fartölvu

IT Advisory

Á síðustu árum hefur áhætta sem tengist upplýsingatækni aukist og nær nú yfir jafn ólík atriði eins og persónuvernd, gagnaöryggi, gagnaeyðingu, öryggisafritun, viðhald og þróun upplýsingakerfa svo nokkrir þættir sem snerta rekstur og öryggi upplýsingakerfa séu nefndir. Áhættustýring upplýsingakerfa (IT Advisory) er deild innan KPMG hf. sem veitir sérhæfða þjónustu á sviði upplýsingaöryggi og rekstraröryggi upplýsingakerfa. Með auknu aðgengi að upplýsingum og sífellt flóknari upplýsingakerfum hefur þörfin fyrir reglubundið eftirlit með öryggi gagna og kerfa aukist. Starfsemi Áhættustýringar upplýsingakerfa veitir samskonar þjónustu og vinnur náið með erlendum IT Advisory deildum KPMG og býður upp á fjölbreytta þjónustu á sviði reksturs og öryggis upplýsingakerfa.

Tölvuendurskoðun

Innri tölvuendurskoðun

IT Benchmarking

ERP Ráðgjöf og ferlagreiningar

Stefnumótun og rekstur upplýsingakerfa

Fylgni við lög og reglugerðir

Ráðgjöf vegna úthýsingar

Skipulögð hagræðing

Áhættustýring upplýsingakerfa KPMG veitir þjónustu á sviði endurskoðunar á öryggismálum upplýsingakerfa og upplýsingavernd fyrirtækja ásamt ferlagreiningu og tölvuendurskoðun (sjá nánar í meðfylgjandi pdf - skjali). Jafnframt bjóðum við fyrirtækjum aðstoð við innri endurskoðun og ráðgjöf í stefnumótun og rekstri upplýsingakerfa.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Halldórsson
Sími: 545 6134

dhalldorsson(hjá)kpmg.is

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland