ERP Ráðgjöf og ferlagreiningar

KPMG aðstoðar fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir við að ganga úr skugga um að viðskiptaferlar og eftirlitsþættir (e.controls) séu til staðar sem virkur hluti af innleiðingu og stærri uppfærslum á samþættum viðskiptahugbúnaði (ERP). Annar áhersluþáttur er athugun á því hvort uppsetning, stillingar og virkni viðskiptakerfa séu fullnægjandi og takt við bestur starfsvenjur. Sérfræðingar okkar notast við þrautreyndan greiningarbúnað og alþjóðlega aðferðarfræði KPMG í þessu skyni, sem í bland við sérþekkingu á helsta viðskiptahugbúnaði (SAP, Microsoft Dynamics NAV og AX) í notkun gerir fyrirtækjum og stofnunum kleyft að nýta hugbúnað sinn á sem besta máta.

Í boði eru fjórar þjónustuleiðir :

  • Greining á viðskiptaferlum.
  • Greining á öryggisþáttum kerfa.
  • Greining á rekstrarþáttum kerfa.
  • Greining á gögnum með tilliti til heilinda og gæða þeirra.

Hér má nálgast bæklinginn ERP Controls Integration; Sustaining Compliance While Implementing Change (pdf).

 

 



 


KPMG Iceland