Skipulögð hagræðing

Mörg fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir þeim vanda að rekstur upplýsingatækni er orðinn of kostnaðarsamur. Umhverfi undanfarinna ára hefur leitt til ,,þenslu" í upplýsingakerfum og oft er erfitt að draga saman á ný. Með skipulagðri hagræðingu aðstoða sérfræðingar KPMG viðskiptavini við að ná fram hámarks arðsemi fyrirliggjandi fjárfestinga um leið og rekstrarkostnaður er lágmarkaður.

Í grunnatriðum notast KPMG við fjögur þrep við sem unnið er eftir en áhersla er lögð á að taka tillit til staðbundinna aðstæðna hvers viðskiptavinar. Áhersla er lögð á aðkomu allra rekstrareininga með það fyrir augum að hámarka arðsemi þeirra fjárfestinga sem þegar hefur verið lagt í og lágmarka rekstrarkostnað.

Þrep 1: Koma böndum á útgjöldin
Útgjöld eru greind niður á tiltekin verkefni og þjónustuþætti þannig að stjórnendur fá yfirsýn yfir raunverulega kostnaðarvalda. Með þessu fá stjórnendur einnig þær upplýsingar sem þeir þurfa til ákvörðunartöku, upplýsingar sem oft eru einungis í höndum sérhæfðra tæknimanna.

Þrep 2: Draga úr kröfum
Væntingar einstakra rekstrareininga til upplýsingatækninnar eru endurskilgreindar með hagræðingu í huga. Með skilgreindum markmiðum er skapað svigrúm til hagræðingar og betri nýtingu starfsmanna í upplýsingatækni.

Þrep 3: Stýring eigna og innkaupa
Eignir eru skilgreindar og skráðar á skipulegan hátt. Tengsl eigna við verkefni og þjónustuþætti er skráð. Verk- og innkaupaáætlanir eru endurskoðaðar m.a. með lágmörkun fjármagnskostnaðar í huga. Þjónustusamningar og leyfismál eru yfirfarin og endurskoðuð.

Þrep 4: Endurskilgreining verkefna
Viðskiptalegur ávinningur verkefna er endurmetinn og verkefnum forgangsraðað í samræmi við það endurmat. Mönnun verkefna endurskoðuð m.a. með meiri nýtingu starfsmanna í huga.

Samhliða endurskipulagningu og hagræðingarferli geta sérfræðingar KPMG aðstoðað fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög við að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til reksturs upplýsingakerfa. Ferlagreiningar, áhættumat, verklagsreglur, öryggis- og rekstrarhandbækur ásamt viðbúnaðar-áætlunum eru lykilatriði í því að tryggja stöðugleika og rekstraröryggi upplýsingakerfa. KPMG hefur mikla reynslu af gerð og innleiðingu stjórntækja af þessu tagi og veitir óháða þjónustu sem sniðin er að umhverfi hvers og eins félags.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Halldórsson
Sími: 545 6134

dhalldorsson(hja)kpmg.is

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 
 


KPMG Iceland