Ráðgjöf vegna úthýsingar
Úthýsing á margvíslegra rekstrarþátta fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga hefur færst í vöxt á síðustu árum. Í mörgum tilfellum er hluti upplýsingakerfa, eftirliti eða rekstrarþjónustu úthýst til þriðja aðila. Oft hefur slík úthýsing rekstrarlegt hagræði í för með sér en til að hámarka hagkvæmnina þarf að greina reksturinn áður en slík ákvörðun er tekin. En er úthýsing í öllum tilfellum hagkvæm? KPMG hefur þróað aðferðarfræði til greiningar á hagkvæmni úthýsingar rekstrarþátta. Aðferðafræðin aðstoðar stjórnendur við að taka upplýsta ákvörðun þegar upplýsingakerfi er valinn hýsingarstaður.
Þegar fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag hefur valið þriðja aðila til að hýsa upplýsingakerfi eða til að veita aðra þjónustu þarf að huga að mörgum þáttum. Sérfræðingar KPMG hafa víðtæka reynslu í greiningu slíkra þátta. Við aðstoðum viðskiptavini við að skilgreina lykilatriði sem fram þurfa að koma til að sú þjónusta sem leitað er eftir sé skilgreind ásamt eftirliti og endurskoðun hýsingaraðila.
KPMG býður einnig upp á þjónustu við úttekt á úthýsingaraðilum. Þar er horft til ýmissa þátta eins og hvort verið sé að uppfylla ákvæði þjónustusamninga, öryggi og aðgengi að upplýsingakerfum ásamt gæðum þjónustu.

Hér má nálgast bæklinginn Sourcing in the Global Environment; the Challenges Ahead (pdf).
