Stefnumótun og rekstur upplýsingakerfa
Sérfræðingar KPMG veita fyrirtækjum stofnunum og sveitarfélögum aðstoð við að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til reksturs upplýsingakerfa. Ferlagreiningar, áhættumat, verklagsreglur, öryggis- og rekstrarhandbækur ásamt viðbúnaðaráætlunum eru lykilatriði í því að tryggja stöðugleika og rekstraröryggi upplýsingakerfa. KPMG hefur mikla reynslu af gerð og innleiðingu stjórntækja af þessu tagi og hefur sem aðili að alþjóðlegu tengslaneti KPMG, aðgang að mörgum sérfræðingum með alþjóðlega reynslu á þessu sviði.
Öryggis- og rekstrarhandbók ásamt verklagsreglum sem eru sniðnar að rekstrarumhverfi og þörfum hvers viðskiptavinar eru ómetanleg stjórntæki til að koma á og viðhalda öguðum og skipulöguðum vinnubrögðum ásamt lágmörkun áhættu við rekstur upplýsingakerfa.
Til að tryggja órofinn rekstur upplýsingakerfa er nauðsynlegt að til staðar sé öflugt stjórnkerfi sem heldur utan um og samþættir alla hluta rekstrarins. KPMG veitir aðstoð við hönnun og innleiðingu á slíkum stjórnkerfum í formi viðbúnaðaráætlana sem taka mið að rekstrarumhverfi og þörfum hvers viðskiptavinar.
