Transaction Services

Ör þróun og umbreyting viðskiptalífsins kallar á sífelldar breytingar á rekstri fyrirtækja. Yfirtaka og samrunar fyrirtækja hafa á undanförnum árum orðið æ algengari og er mikilvægt tæki til að framfylgja stefnu fyrirtækja. Að baki liggur hvati til að styrkja markaðsstöðu, auka hagræðingu í rekstri og ná fram samlegðaráhrifum til að auka arðsemi og nýtingu fjármagns. Hvatinn til lengri tíma er að mestu leyti fólginn í sameinaðri þekkingu, tækni, viðskiptavild, þjónustu, vörum og mörkuðum. Í flestum tilvikum leiðir aukin stærð fyrirtækis til forskots í samkeppni, gefur tækifæri á ódýrara lánsfjármagni og þjónustu á breiðara sviði.

Að mörgu er að huga í slíku ferli og til að ná sem bestum árangri skiptir miklu máli að undirbúningur og framkvæmd samruna eða yfirtöku sé vandaður og unnin af fagmennsku og þekkingu. Í könnun sem KPMG gerði árið 2003 um samruna og yfirtökur kom fram að 65% viðskipta juku ekki verðmæti hluthafa.

KPMG býr yfir sérþekkingu, reynslu og greiningartækjum til að finna, greina og eyða þeim vandamálum sem geta komið upp í kaup- og söluferli fyrirtækja. Þannig getur KPMG aðstoðað við að skapa árangursrík viðskipti með fyrirtæki.

KPMG veitir m.a. eftirfarandi aðstoð í kaup- og söluferli fyrirtækja:

Mat á mögulegum viðskiptum (Pre-deal evaluation)

  • KPMG greinir lykiláhættuþætti vegna kaupa og sölu á fyrirtækjum og þá þætti sem geta komið í veg fyrir viðskiptin. Framkvæmt er mat á styrkleikum og veikleikum fyrirtækja og aðstoðað er við mat á áhrifum væntanlegra viðskipta á þau fyrirtæki sem fyrir eru í eigu hugsanlegs kaupanda.

Aðstoð við gerð kauptilboða (bid services)

  • KPMG aðstoðar tilboðsgjafa og/eða tilboðshafa í gegnum allan tilboðsferilinn, bæði í vinveittum og óvinveittum tilboðum. Áhersla er lögð á að rannsaka mótaðilann án aðgangs að fyrirtæki hans, meta virði, samlegðaráhrif og aðstoð við frágang á tilboði.

Áreiðanleikakannanir (Transaction evaluation (due diligence))

  • KPMG aðstoðar við að meta þá lykilþætti sem snerta rekstur fyrirtækis og viðhalda hagnaði og sjóðstreymi þess. KPMG framkvæmir skoðun á markaði, samkeppnisumhverfi og markaðsrannsóknir á viðskiptasamböndum fyrirtækisins. KPMG framkvæmir greiningu á rekstrinum, áætlunum, skattamálum, sjóðstreymi, stjórnendaupplýsingum, upplýsingakerfum, hlunnindum og lagalegum þáttum í rekstri.

Aðstoð við sölu fyrirtækja og áreiðanleikakannanir fyrir seljendur (Vendor assistance)

  • Aðstoðað er við mat á leiðum til að selja eða leysa upp fyrirtæki. KPMG veitir aðstoð við upplýsingaöflun og uppsetningu gagnaherbergja vegna áreiðanleikakannana, svörun á fyrirspurnum frá kaupendum, skiptum á hlutabréfum, aðlögun kaupverðs, ábyrgðir og öðrum atriðum sem upp kunna að koma.
  • Snemma í söluferlinu er framkvæmt mat og greining á fjárhagslegri, markaðslegri og rekstrarlegri frammistöðu fyrirtækisins sem selt er. Slík áreiðanleikakönnun skýtur styrkari stoðum undir kynningargögn auk þess að veita hugsanlegum kaupendum meira öryggi við tilboðsgerð.

Uppbygging viðskipta (Transaction structuring)

  • KPMG aðstoðar við uppbyggingu árangursríkra viðskipta að teknu tilliti til þeirrar skattalegu, reikningshaldslegu, markaðslegu og lagalegu aðstöðu sem fyrirtækið er í.

Aðstoð við samningsgerð (Contract assistance)

  • KPMG styður við og/eða stýrir samningaferli og aðstoðar við að ljúka viðskiptum, frágangi samninga og tilkynningu viðskiptanna til hlutaðeigandi aðila eftir því sem við á. KPMG aðstoðar við reikningshaldslega og skattalega hlið á kaup- og sölusamningum, ásamt frágangi þeirra í bókhaldi fyrirtækisins.

Nánari upplýsingar veitir:

H. Ágúst Jóhannesson
Sími: 545 6350

Netfang: ajohannesson(hjá)kpmg.is

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 

Transaction Services


 


KPMG Iceland