Lagabækur og tveir á fundi

Tekjuskattshlutfall fyrirtækja - könnun KPMG í janúar 2006

KPMG International Tax Center kannar árlega tekjuskattshlutföll fyrirtækja víðsvegar um heiminn. Könnunin nær nú til 86 ríkja, þar á meðal til allra aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), allra ríkja Evrópusambandsins, 19 ríkja í Asíu og Kyrrahafslöndunum auk 19 ríkja í Suður – Ameríku. Könnunin í ár gerir samanburð á tekjuskattshlutfalli fyrirtækja þann 1. janúar 2005 og 1. janúar 2006. Skrifstofur KPMG í þessum ríkjum lögðu til upplýsingar við gerð þessarar könnunar.

Hér má nálgast könnunina í heild sinni.

Tekjuskattur fyrirtækja heldur áfram að lækka innan Evrópu og OECD.

Tekjuskattshlutfall fyrirtækja í Evrópu fer jafnt og þétt lækkandi og er helsta ástæðan talin vera frjáls för fjármagns og aukin samkeppni meðal ríkja Evrópusambandsins um fjármagn og vinnuafl. Meðaltalstekjuskattshlutfallið innan Evrópusambandsins er nú 25,04% en var 25,32% fyrir ári síðan. Til samanburðar má geta að meðaltalstekjuskattshlutfall aðildarríkja OECD lækkar úr 28,55% í 28,31%.

Þau ríki Evrópusambandsins sem hafa lækkað tekjuskattshlutfallið sitt eru Tékkland (lækkar um 2%), Eistland (lækkar um 1%), Grikkland (lækkar um 2- 3%), Frakkland (lækkar um 0,5%), Lúxemborg (lækkar um 0,75%) og Holland (lækkar um 1,5- 1,9%). Eina Evrópuríkið sem hækkaði tekjuskattshlutfallið sitt er Þýskaland, fór úr 38,31% í 38,34%.

Innan OECD er Ísland áfram í hópi þeirra ríkja þar sem tekjuskattur fyrirtækja er hvað lægstur. Ungverjaland er með 16% tekjuskattshlutfall (auk þess er greiddur 2% flatur skattur á veltu fyrirtækja en tvöföld sú fjárhæð er þó frádráttarbær frá almenna tekjuskattshlutfallinu) en Írland er með lægsta tekjuskattshlutfallið sem er 12,5% (á ekki við um tekjur utan kjarnastarfsemi). Í raun má því segja að Ísland er með eitt hagstæðasta tekjuskattshlutfallið innan OECD þar sem það á við um allar tekjur fyrirtækja með takmarkaðri ábyrgð hluthafa.

Minni breytingar í ríkjum Suður – Ameríku, Asíu og Kyrrahafslöndunum.

Minni breytingar hafa orðið á tekjuskattshlutfalli í Suður – Ameríku, Asíu og Kyrrahafs-löndunum. Þó lækkaði tekjuskattshlutfallið í Indlandi úr 36,59% í 33,66% og í Barbadoseyjum úr 30% í 25%. Tekjuskattshlutfallið hækkaði hins vegar í Filippseyjum úr 32% í 35% og í Dóminíska lýðveldinu úr 25% í 30%.

Lágt skatthlutfall þýðir ekki endilega lága skattbyrði.

Þegar verið er að bera saman skattlagningu milli ríkja er að jafnaði ekki nægilegt að líta einungis á skatthlutfallið, þ.e. hundraðshluta tekjuskatts, eitt og sér. Ýmsir sérstakir frádrættir og sérstakar ívilnanir, áður en skattstofn er ákvarðaður, geta verið í gildi og því þarf að líta til lagasetningarinnar í heild sinni. Hafa verður í huga að lágt skatthlutfall þarf ekki endilega að þýða lága skattbyrði. Ákvörðun skattstofna getur verið mismunandi eftir ríkjum og þannig haft áhrif á skattlagningu. Sé skattur lækkaður er ekki ólíklegt að annar skattur sé hækkaður, svo sem óbeinir skattar, þar sem ríki verða að tryggja skatttekjur sínar. Þegar skattbyrði milli ríkja er borin saman verður að líta til óbeinna skatta, fjárhagslegrar hvatningar fyrir innlenda fjárfestingu og gæði og stöðugleika löggjafar hvers ríkis.

Samanburðartöflur.

Hér má sjá tvær samanburðartöflur um tekjuskattshlutfall fyrirtækja. Annars vegar er borið saman meðaltalstekjuskattshlutfall eftir svæðum og hins vegar innan OECD.

Meðaltalstekjuskattshlutfall eftir svæðum:

Svæði

1. janúar 2006

Evrópusambandið

25,04%

OECD

28,31%

Asía og Kyrrahafslöndin

29,99% 

Suður - Ameríka

28,25% 

 

Samanburður á tekjuskattshlutfalli fyrirtækja innan OECD:

Land

1. janúar 2005

1. janúar 2006

Ástralía

30% 

30% 

Austurríki

25% 

25% 

Bandaríkin

40% 

40% 

Belgía

33,99% 

33,99% 

Bretland

30% 

30% 

Danmörk

28% 

28% 

Finnland

26% 

26% 

Frakkland

33,83% 

33,33% 

Grikkland

24% / 32%

22% / 29%

Holland

27% / 31,5%

25,5% / 29,6%

Írland

12,5% 

12,5% 

Ísland

18% 

18% 

Ítalía

37,25% 

37,25% 

Japan

40,69% 

40,69% 

Kanada

36,1% 

36,1% 

Kórea

27,5% 

27,5% 

Lúxemborg

30,38% 

29,63% 

Mexíkó

30% 

29% 

Noregur

28% 

28% 

Nýja-Sjáland

33% 

33% 

Pólland

19% 

19% 

Portúgal

27,5% 

27,5% 

Slóvakía

19% 

19% 

Spánn

35% 

35% 

Sviss

21,3% 

21,3% 

Svíþjóð

28% 

28% 

Tékkland

26% 

24% 

Tyrkland

30% 

30% 

Ungverjaland

16% 

16% 

Þýskaland

38,31% 

38,34% 






Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland