Greinar frá starfsmönnum skattasviðs

Á þessari síðu má nálgast ýmsar greinar starfsmanna skattasviðs sem fjalla um skattatengd málefni.

Danskir eftirlaunaþegar streyma til Frakklands og Spánar; Danmörk segir upp tvísköttunarsamningum við ríkin. Meginmarkmið tvísköttunarsamninga er að koma í veg fyrir tvísköttun. Í tvísköttunarsamningum er því almennt komið svo fyrir að heimilisfestisríki eftirlaunaþega má eitt skattleggja eftirlaunagreiðslur þeirra, nema þegar um er að ræða eftirlaun vegna opinbers starfs.

Skattalækkanir Sarkozys. Síðan hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy var kosinn forseti í Frakklandi hafa verið gerðar umtalsverðar breytingar á franskri löggjöf í anda markaðshyggju. Markmiðið hefur verið að hvetja fólk til vinnu, draga úr atvinnuleysi og auka kaupmátt.

Skattlagning hagnaðar af sölu hlutafjár. Alþingi samþykkti nú í maí breytingar á lögum um tekjuskatt þar sem kveðið er á um að hagnaður af sölu hlutabréfa hjá félögum verði ekki skattlagður. Hér á eftir verður leitast við að varpa ljósi á helstu áhrif breytingarinnar.

Sannleikurinn um gjaldmiðla og reikningsskil fyrirtækja; evrur, krónur og aurar. Mikil umræða hefur farið fram á undanförnum misserum um að íslenska krónan sé ótryggur gjaldmiðill og þær miklu sveiflur sem hafa verið á gengi hennar hafi óheppileg áhrif á reikningsskil félaga og gefi í mörgum tilvikum ekki rétta mynd af afkomu þeirra. Alþjóðavæðing viðskiptalífsins og útrás íslenskra félaga hefur einnig haft áhrif á þessa umræðu.

Ársreikningar í erlendum gjaldmiðlum. Nokkurs misskilnings virðist hafa gætt í opinberri umfjöllun um þá ákvörðun stjórnenda Straums- Burðaráss að færa bókhald félagsins og birta reikningsskil þess í evrum frá 1. janúar 2007. Umræðan hefur verið á þann veg að ákvörðunin muni hafa áhrif á daglegan rekstur og ákvarðanir um fjárfestingastefnu bankans.

Skattlagning félaga sem birta ársreikninga sína í erlendum gjaldmiðlum. Fjöldi félaga hefur nýtt sér heimild í lögum til að færa bókhald og birta ársreikninga sína í erlendum gjaldmiðlum og hefur mikil umræða farið fram um hugsanleg áhrif þess á gengi krónunnar.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland