Hefur þú innt af hendi greiðslur til erlendra aðila?
Samkvæmt tekjuskattslögum skulu erlendir aðilar, jafnt menn sem félög, sem fá greiðslu fyrir þjónustu eða starfsemi innta af hendi hér á landi, greiða hér tekjuskatt af þeim tekjum. Þá skulu erlendir aðilar sem hafa hér á landi tekjur af leigu, afnotum eða rétti til hagnýtingar á lausafé, einkaleyfum, hvers konar réttindum eða sérþekkingu, svo og af söluhagnaði vegna slíkra eigna, greiða hér tekjuskatt af þeim tekjum.
Innlendir greiðendur hafa skattalegum skyldum að gegna vegna greiðslna af umræddum toga. Almennt ber þeim að halda eftir skatti af greiðslunni og skila honum í ríkissjóð. Viðtakandi greiðslu gæti verið undanþeginn skatti af greiðslunni samkvæmt tvísköttunarsamningi milli Íslands og heimaríkis hans. Á grundvelli slíkrar undanþágu getur erlendi viðtakandinn sótt um vottorð um skattundanþáguna til ríkisskattstjóra. Vottorðið leysir innlenda greiðandann undan þeirri skyldu að halda skatti eftir af greiðslunni, en eftir vottorðinu þarf hann skilyrðislaust að ganga. Engu að síður ber greiðandanum að gera skattyfirvöldum grein fyrir greiðslunni og móttakanda þeirra, á þar til gerðu eyðublaði.
Ef þú eða þitt fyrirtæki hefur innt af hendi greiðslur til erlendra aðila og ekki er ljóst hvort farið hefur verið rétt með greiðslur til ríkissjóðs og upplýsingagjöf til skattyfirvalda, er full ástæða fyrir þig að leita þér aðstoðar. Skyldurnar kunna að vera ríkar og háar fjárhæðir í húfi.
Skattasvið KPMG hefur á að skipa starfsfólki, með þekkingu og reynslu í þessum efnum, sem fúst er að leggja þér lið. Nánari upplýsingar um þjónustu skattsviðs KPMG má fá með því að hringja í síma 545-6000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið tax@kpmg.is.
