Skattavika KPMG 2010
Fróðleikur með morgunkaffinu

Miklar breytingar voru gerðar á skattalögum og öðrum lögum um tekjuöflun ríkissjóðs á árinu 2009. Til að gera þeim sem best skil og miðla áhugaverðum fróðleik er boðið til skattaviku KPMG frá þriðjudeginum 26. til föstudagsins 29. janúar. Fyrirlestrarnir verða haldnir í Borgartúni 27 og hefjast þeir allir kl. 8.30. Áætlaður fundartími er 1,5 klst. og boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.00. Öllum er heimil þátttaka og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá þriðjudags 26. janúar - skráning
Gjaldeyrishöft Seðlabanka Íslands - komin til að vera - aftur?
Ingibjörg Guðbjartsdóttir frá Seðlabanka Íslands
Nýjar reglur um skatt á fjármagnstekjur
Ágúst Karl Guðmundsson, KPMG
Dagskrá miðvikudags 27. janúar - skráning
Virðisaukaskattur í 20 ár - hvað höfum við lært og hverju þarf að breyta?
Kristín Norðfjörð frá ríkisskattstjóra.
Tekjuskattur og skattskuldbindingar félaga - helstu breytingar
Steingrímur Sigfússon, KPMG
Dagskrá fimmtudags 28. janúar - skráning
Breytingar á skattkerfinu
Ingvar J. Rögnvaldsson vararíkisskattstjóri
Skattalagabreytingar á liðnu ári
Sigurjón Högnason, KPMG
Dagskrá föstudags 29. janúar - skráning
Nýir og breyttir skattstofnar - umfjöllun og dæmi um útreikninga
Guðrún Björg Bragadóttir, KPMG
Mismunur á skattlagningu eftir félagaformum
Jónas Rafn Tómasson, KPMG
Nýsköpunarfyrirtæki og skattkerfið - dragbítur eða hvati?
Þórður Magnússon, Eyrir Invest.
Vakin er athygli á að hver fundardagur veitir 1,5 endurmenntunareiningu hjá FLE.
