Skattatíðindi forsíða 37. tbl.

Skattatíðindi 37. tbl.

Nokkuð hefur verið um lagabreytingar að undanförnu sem tengjast skattamálum. Í 37. tbl. Skattatíðinda eru teknar til umfjöllunar nokkrar þeirra lagabreytinga sem afgreiddar hafa verið frá Alþingi á undanförnum vikum. Viðamesta umfjöllunin varðar breytingar á tekjuskattslögum sem samþykktar voru á Alþingi þann 15. apríl sl. Í þeirri umfjöllun er m.a. fjallað um skattlagningu hagnaðar lögaðila í lágskattaríki, svokallaðar CFC-reglur.

Breytingar á lögum um tekjuskatt

Þann 15. apríl 2009 voru á Alþingi samþykkt lög um breytingar á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt. Efni breytinganna er:

  • Skattlagning hagnaðar lögaðila í lágskattaríki.
  • Skattfrelsi eftirgefinna skulda manna.
  • Aukin upplýsingaskylda.

Skattlagning hagnaðar lögaðila í lágskattaríki (CFC-reglur)

  • Skattur lagður á hagnað lögaðila sem heimilisfastur er í lágskattaríki.
  • Skattskyldan hvílir á eigendum/stjórnendum lögaðilans, heimilsföstum á Íslandi.
  • Hagnaðurinn er skattlagður sem tekjur af atvinnurekstri, jafnt hjá mönnum sem lögaðilum. (Meira)

Greiðsluaðlögun fyrir atvinnulífið

Þann 18. mars síðastliðinn var samþykkt á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, lögum um vörugjald og lögum um virðisaukaskatt; lög nr. 17/2009. Lögum þessum er ætlað að bregðast tímabundið við brýnni þörf á gjaldaaðlögun fyrirtækja vegna aðstæðna í íslensku efnahagslífi. Samkvæmt lögunum er gjalddögum aðflutnings- og vörugjalda fjölgað og greiðslum með þeim hætti dreift og seinkað að hluta. Gildir þessi tímabundna breyting vegna uppgjörstímabila á árinu 2009. Gildistaka laganna miðast við 15. mars 2009, sem er til þess fallið að ákvæði þeirra nái til fyrsta gjalddaga ársins vegna aðflutningsgjalda, sem var 15. mars. (Meira)

Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi

Þann 2. apríl sl. voru samþykkt á Alþingi lög um breytingar á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Með lögunum er endurgreiðsluhlutfall hækkað úr 14% í 20%. Framangreind breyting þýðir að heimilt er nú að greiða úr ríkissjóði 20% framleiðslukostnaðar sem til fellur við framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis á Íslandi eftir nánari skilyrðum laganna og reglugerðar sem sett hefur verið á grundvelli þeirra. Lögin eru tímabundin og falla úr gildi 31. desember 2011.


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland