Skattatíðindi 38.tbl

Skattatíðindi 38. tbl.

Í þessu 38. tbl Skattatíðinda er fjallað um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna verksmiðjuframleiddra húsa og húseininga; nýlega úrskurði yfirskattanefndar, hvar í heimi hæsta tekjuskattinn er að finna, lagafrumvarp um opinbert hlutafélag til endurskipulagningar mikilvægra fyrirtækja og samning Íslands og Bresku Jómfrúreyja um upplýsingaskipti í skattamálum

Endurgreiðsla virðisaukaskatts af verksmiðjuframleiddum húsum og húseiningum

Nýlegir úrskurðir yfirskattanefndar

Hvar er hæsti tekjuskattur í heimi?

Lagafrumvarp um opinbert hlutafélag til endurskipulagningar mikilvægra fyrirtækja

Samningur Íslands og Bresku Jómfrúreyja um upplýsingaskipti í skattamálum

Ríkisstjórnir Íslands og Bresku Jómfrúreyja hafa gert með sér samkomulag um gagnkvæm skipti á upplýsingum sem fyrirsjáanlegt er að varði skattframkvæmd í ríkjunum samkvæmt lögum þess ríkis sem fer fram á upplýsingarnar hverju sinni. Að fenginni skriflegri beiðni skulu stjórnvöld í ríkinu sem beiðni er beint til veita stjórnvöldum í hinu ríkinu þær upplýsingar sem það óskað eftir, óháð því hvort framferði þess sem upplýsingarnar varða felur í sér lögbrot eða ekki í því ríki sem upplýsingarnar veitir. Ríkið sem upplýsingabeiðni er beint til getur, eftir því sem lög þess leyfa, heimilað fulltrúa stjórnvalda í hinu ríkinu að koma til landsins í því skyni að funda með og skoða skjöl hjá þarlendum aðilum að fengnu skriflegu samþykki viðkomandi aðila. Samkomulagið gengur ekki í gildi fyrr en það hefur fengið staðfestingu í báðum ríkjunum eftir þeim reglum sem gilda í hvoru ríki fyrir sig.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland