Endurgreiðsla virðisaukaskatts af verksmiðjuframleiddum húsum og húseiningum
Allt frá upptöku virðisaukaskatts hér á landi hefur í lögum verið heimild til endurgreiðslu hluta virðisaukaskatts af söluverði verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa. Nánar er kveðið á um endurgreiðsluna í reglugerð nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði. Að því er verksmiðjuframleidd hús varðar hefur reglugerðin staðið lítið breytt frá setningu hennar. Hlutföll endurgreiðslu breyttust þó á árunum 1992, 1993 og 1996. Þá hefur endurgreiðsluheimildin frá því í ágúst 1999 tekið til innfluttra húsa jafnt og húsa framleiddra hér á landi.
Með reglugerð nr. 439/2009, sem sett var og birt þann 8. maí s.l. voru á reglugerðinni nr. 449/1990 gerðar breytingar er lúta að verksmiðjuframleiddum húsum. Breytingarnar eru þríþættar.
Í fyrsta lagi tekur endurgreiðsluheimildin eftirleiðis einnig til verksmiðjuframleiddra húseininga.
Í öðru lagi tekur endurgreiðsluheimildin eftirleiðis til verksmiðjuframleiddra húsa og húseininga sem afhent eru óuppsett, en fram til þessa hefur heimildin verið bundin við að hús sé afhent uppsett á grunni sem kaupandi leggur til.
Í þriðja lagi er endurgreiðsluhlutfallið hækkað og verður eftirleiðis sem hér segir:
7,75% af söluverði (að meðtöldum virðisaukaskatti) húss sem afhent er fullgert.
8,75% af söluverði (að meðtöldum virðisaukaskatti) húss sem afhent er tilbúið undir málningu og innréttingu.
6,25% af söluverði (að meðtöldum virðisaukaskatti) húss sem afhent er fokhelt.
5,45% af söluverði (að meðtöldum virðisaukaskatti) húss eða húseiningar sem afhent er óuppsett.
