Skattatíðindi 39. tbl.
Fimmtudaginn 18. júní var dreift á Alþingi stjórnarfrumvarpi bornu upp af fjármálaráðherra, um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Eru hér í stutt máli rakin helstu efnisatriði er lúta að sköttum, en auk þess er lauslega vikið að helstu breytingum sem lagðar eru til á almannatryggingum. Síðar verður á þessum vettvangi gerð ítarlegri grein fyrir frumvarpinu.
Tryggingagjald
Lögð er til tvíþætt breyting á tryggingagjaldi í víðari merkingu þess hugtaks. Annars vegar hækkun á atvinnutryggingagjaldi úr 0,65% í 2,21%. Hins vegar hækkun á gjaldi í ábyrgðasjóð launa úr 0,1% í 0,2%. Samanlagt tryggingagjald hækkar því úr 5,34% í 7,0%. Lagt er til að breytingin taki gildi 1. júlí 2009.
Virðisaukaskattur
Lagt er til að virðisaukaskattur af tilteknum flokkum matvara verði hækkaður úr 7% í 24,5%. Þeir flokkar matvara sem um er ræðir eru; sykur og sætindi, súkkulaði og aðrar matvörur úr kakói, sætabrauð og kökur, ávaxtasafi og aðrar drykkjarvörur. Lagt er til að breytingin taki gildi 1. september 2009.
Tekjuskattur
Lagt er til að sérstakur 8% hátekjuskattur verði lagður á tekjur einstaklinga yfir 700.000 kr. á mánuði, sem falla til á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2009. Skattlagningunni er ætlað að vera óháð hjúskaparstöðu og tekjum maka eða sambýlings. Lögð er til breyting á skattlagningu fjármagnstekna manna utan atvinnurekstrar sem falla til á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2009. Fjármagnstekjur hvers manns upp að 250.000 kr. skulu skattlagðar um 10%, en fjármagnstekjur umfram 250.000 skulu skattlagðar um 15%. Í tilviki hjóna og annars samskattaðs fólks skal sameiginlegum vaxtatekjum skipt jafnt á milli þeirra þegar tekjuviðmiðun þessi er fundin og þær skattlaðar sérstaklega hjá hvoru fyrir sig (meira).
Staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur
Lögð eru til ársfjórðungsleg skil á staðgreiðslu skatts af fjármagnstekjum í stað árlegra skila frá og með 1. júlí 2009. Skilaskyldir aðilar skulu standa ríkissjóði skil á afdregnum skatti fyrir þrjá mánuði í senn. Gjalddagi skal vera 20. dagur næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils og eindagi 15 dögum síðar. Skatti afdregnum á tímabilinu júlí - september ber því að skila 20. október, en í síðasta lagi 4. nóvember. Gjalddagi uppgjörstímabilsins 1. janúar til 30. júní 2009 skal vera 20. júlí og eindagi 4. ágúst 2009 (meira).
Staðgreiðsla opinberra gjalda.
Lagt er til að innheimtur verði í staðgreiðslu 15% skattur af vöxtum sem greiddir eru til aðila sem bera hér á landi takmarkaða skattskyldu vegna heimilisfesti erlendis. Lagt er til að réttilega ákvörðuð og innborguð staðgreiðsla verði fullnaðargreiðsla skattsins, án þess fram þurfi að fara frekari álagning. Breytingunni er ætlað að koma til framkvæmda 1. janúar 2010.
Lagt er til að á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2009 verði launagreiðendum gert að halda eftir 8% tekjuskatti af launum umfram 700.000 kr. hjá hverjum einstaklingi, til viðbótar 37,2% skatti.
Almannatryggingar.
Lagt er til að breytingin öðlist gildi 1. júlí 2009.
