Staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur

Lögð eru til ársfjórðungsleg skil á staðgreiðslu skatts af fjármagnstekjum í stað árlegra skila frá og með 1. júlí 2009. Skilaskyldir aðilar skulu standa ríkissjóði skil á afdregnum skatti fyrir þrjá mánuði í senn. Gjalddagi skal vera 20. dagur næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils og eindagi 15 dögum síðar. Skatti afdregnum á tímabilinu júlí ? september ber því að skila 20. október, en í síðasta lagi 4. nóvember. Gjalddagi uppgjörstímabilsins 1. janúar til 30. júní 2009 skal vera 20. júlí og eindagi 4. ágúst 2009.

Lagt er til að skilaskyldum aðilum verði gert að halda eftir í staðgreiðslu 5% skatti af staðgreiðsluskyldum fjármagnstekjum umfram kr. 125.000 á þriggja mánaða greiðslutímabili, til viðbótar 10% skatti. Skyldu þessari er ætlað að taka til vaxta sem falla til á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2009, en ekki til vaxta sem falla til fyrir það tímamark enda þótt þeir verði greiddir eða greiðslukræfir eftir þann tíma.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland