Skattatíðindi 40. tbl.

Frumvarp til laga um kyrrsetningu eigna aðila sem sæta skattrannsókn
Í lok sumarþings flutti fjármálaráðherra frumvarp til laga um breytingu á tekjuskattslögum sem varðar heimild til að krefjast kyrrsetningar eigna til tryggingar greiðslu væntanlegrar skattkröfu, fésektar og sakarkostnaðar í málum er sæta rannsókn hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Er frumvarp fjármálaráðherra nú til meðferðar efnahags- og skattanefndar Alþingis.
Í frumvarpinu felst einkum að heimilt verði að kyrrsetja eignir aðila sem eru til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Í frumvarpinu er lagt til að tollstjóri fari fram með kyrrsetningarkröfu að undangenginni sérstakri tilkynningu skattrannsóknarstjóra ríkisins til tollstjóra. (Meira)
Brjóta lög um tekjuskatt nr. 90/2003 gegn stofnsamningi EFTA?
Að mati KPMG hf. brjóta ákvæði 9. tölul. 31. gr. og 9. tölul. a 31. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, þær samningsskuldbindingar sem Ísland hefur gengist undir með stofnsamningi EFTA - Fríverslunarsamtaka Evrópu.
Í 9. tölul. 31. gr. tekjuskattslaganna er fjallað um frádráttarheimild íslenskra félaga vegna móttekinna arðgreiðslna. Með lagabreytingu á árinu 2007 var erlendum félögum, sem heimilisföst eru í ríki sem er aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, veitt sambærileg heimild.
Í 9. tölul. a 31. gr. tekjuskattslaganna er fjallað um frádráttarheimild íslenskra félaga og félaga á Evrópska efnahagssvæðinu vegna söluhagnaðar hlutabréfa. Var ákvæðið innleitt í tekjuskattlögin á árinu 2008. (Meira)
Virðisaukaskattshækkanir í aðildarríkjum ESB
Í byrjun október verður 138. löggjafarþing Alþingis sett. Búast má við að umræður um frumvarp til fjárlaga verði fyrirferðarmiklar að venju á haustþingi. Gerða má ráð fyrir að samhliða frumvarpi til fjárlaga komi fram ýmsar tillögur um breytingar á skattheimtu ríkisins. Heyrst hefur að meðal annars megi vænta hækkana á tekjuskatti og virðisaukaskatti.
Undanfarin ár hefur nokkuð borið á lækkun virðisaukaskatts í aðildarríkjum ESB. Nú ber svo undir að ýmis ríki ESB hafa hækkað virðisaukaskatt nýlega eða fyrirhugi hækkun virðisaukaskatts á næstunni. (Meira)
Héraðsdómur - samlagsfélög
Þann 10. september sl. féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness í máli nr. E-822/2009. Fjallaði málið um ábyrgð tveggja eigenda samlagsfélags (slf.) á fjárhagslegum skuldbindingum þess, en bú félagsins hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta. (Meira)
Skýrsla OECD um íslensk efnahagsmál
Þann 2. september sl. birti OECD (Efnahags- og framfarastofnunin í París) skýrslu um íslensk efnahagsmál. Eitthvað hefur verið fjallað um skýrsluna í fjölmiðlum, ekki síst umfjöllun OECD um trúverðugleika íslenskrar peningamálastefnu og þá ábendingu sem fram kemur í skýrslunni að besta úrræðið fyrir Ísland væri að taka upp evru sem gjaldmiðil. Hafa íslenskir stjórnmálamenn meðal annars gagnrýnt OECD fyrir að blanda sér í íslensk innanríkismál með framangreindri ábendingu. Þó að framangreint hafi vakið einna mesta athygli fjölmiðla, er ýmislegt annað sem fram kemur í skýrslunni athyglivert, enda skýrslan talsvert efnismikil. (Meira)
Nefnd um umhverfisgjöld tengd ferðaþjónustu
Þann 18. september sl. sendi fjármálaráðuneytið frá sér fréttatilkynningu um skipun í nefnd um umhverfisgjöld tengd ferðaþjónustu. Samkvæmt fréttatilkynningunni er nefndinni ætlað að kanna grundvöll þess að leggja á umhverfisgjöld tengd ferðaþjónustu sem renni til uppbyggingar þjóðgarða og annarra fjölsóttra og friðlýstra áningarstaða ferðamanna og til eflingar ferðaþjónustu. (Meira)
Gjalddagar útvarpsgjalds
Um síðustu áramót lauk innheimtu afnotagjalds fyrir útvarpsafnot vegna Ríkisútvarpsins (hljóð- og sjónvarp). Upp var tekið útvarpsgjald sem skattstjórar leggja á samhliða álagningu opinberra gjalda. Samkvæmt lögum nr. 174/2008 var gjalddagi útvarpsgjalds einn. Með lögum nr. 79/2009 var þessu breytt þannig að gjalddagar einstaklinga eru þrír í stað eins: 1. ágúst, 1. október og 1. desember. Gjalddagi lögaðila verður hins vegar einn, 1. nóvember ár hvert.
