Virðisaukaskattshækkanir í aðildarríkjum ESB
Í byrjun október verður 138. löggjafarþing Alþingis sett. Búast má við að umræður um frumvarp til fjárlaga verði fyrirferðarmiklar að venju á haustþingi. Gerða má ráð fyrir að samhliða frumvarpi til fjárlaga komi fram ýmsar tillögur um breytingar á skattheimtu ríkisins. Heyrst hefur að meðal annars megi vænta hækkana á tekjuskatti og virðisaukaskatti.
Undanfarin ár hefur nokkuð borið á lækkun virðisaukaskatts í aðildarríkjum ESB. Nú ber svo undir að ýmis ríki ESB hafa hækkað virðisaukaskatt nýlega eða fyrirhugi hækkun virðisaukaskatts á næstunni.
Þann 1. desember 2008 var almennt skattþrep virðisaukaskatt lækkað úr 17,5% í 15% í Bretlandi. Var um tímabundna ráðstöfun að ræða sem ætluð var að örva hagkerfið og þar með draga úr áhrifum niðursveiflunnar. Hefur nú verið staðfest að virðisaukaskatturinn muni hækka á ný í 17,5% þann 1. janúar 2010. Í Ungverjalandi var almennt skattþrep virðisaukaskatts hækkað úr 20% í 25% þann 1. júlí sl. Nefna má að hærra mega aðildarríki ESB ekki fara með almennt skattþrep virðisaukaskatts. Í Litháen var almennt þrep virðisaukaskatt hækkað úr 19% í 21% þann 1. september sl. og í Lettlandi mun virðisaukaskatturinn hækka úr 18% í 21% 1. janúar 2010. Þá má nefna að 1. júlí 2010 mun almennt skattþrep hækka úr 22% í 23% í Finnlandi.
