Héraðsdómur - samlagsfélög

Þann 10. september sl. féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness í máli nr. E-822/2009. Fjallaði málið um ábyrgð tveggja eigenda samlagsfélags (slf.) á fjárhagslegum skuldbindingum þess, en bú félagsins hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Í tilkynningu um stofnun félagsins kemur fram að annar eigandinn er aðalfélagsaðili og beri ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins en hinn eigandinn samlagsfélagsaðili og beri takmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins. Tekið er fram í tilkynningunni að ábyrgð hins síðarnefnda takmarkist við kr. 50.000,-. Í máli þessu gerði stefnandi meðal annars þá kröfu að samlagsfélagsaðilinn greiddi honum kr. 50.000,- í samræmi við framangreinda ábyrgð.

Fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjaness að ekki verði tilkynningin skilin með öðrum hætti en þeim að ábyrgð samlagsfélagsaðilans á heildarskuldbindingum félagsins takmarkist við ábyrgðarfjárhæð samkvæmt tilkynningunni. Af því leiðir að hver einstakur kröfuhafi getur ekki gengið að viðkomandi aðila til greiðslu á áðurgreindri fjárhæð. Fram kemur í dóminum að samlagsfélagsaðilinn hafði þá þegar greitt kr. 50.000,- til þrotabúsins vegna ábyrgðar sinnar og myndi sú fjárhæð koma til skipta á milli kröfuhafa félagsins í samræmi við reglur gjaldþrotaskiptaréttar.

Sjá má dóm Héraðsdóms Reykjaness hér.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland