Nefnd um umhverfisgjöld tengd ferðaþjónustu

Þann 18. september sl. sendi fjármálaráðuneytið frá sér fréttatilkynningu um skipun í nefnd um umhverfisgjöld tengd ferðaþjónustu. Samkvæmt fréttatilkynningunni er nefndinni ætlað að kanna grundvöll þess að leggja á umhverfisgjöld tengd ferðaþjónustu sem renni til uppbyggingar þjóðgarða og annarra fjölsóttra og friðlýstra áningarstaða ferðamanna og til eflingar ferðaþjónustu.

Samkvæmt fréttatilkynningunni mælist fjármálaráðherra til þess að nefndin hraði störfum sínum eftir föngum og að fyrir liggi tillögur eða bráðabirgðaskýrsla eigi síðar en í lok nóvember nk., þannig að hugmyndir og tillögur nefndarinnar megi eftir atvikum hafa til hliðsjónar við afgreiðslu fjárlaga og tengdar lagabreytingar.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland