Skattatíðindi 41. tbl
Röð námskeiða um skattamál á vegum Skattasviðs KPMG
Í nóvember stendur Skattasvið KPMG fyrir röð námskeiða um skattamál. Námskeiðin eru opin öllum gegn hóflegu gjaldi. Finna má upplýsingar um efni þeirra, verð og skráningu með því að smella á neðangreindar krækjur. Eftirtalin námskeið eru fyrirhuguð:
19. nóvember - Virðisaukaskattur og bókhald.
20. nóvember - Skattleg áhrif af niðurfellingu krafna og kaup á kröfum með afföllum.
23. nóvember - Reikningsskil og skattskil í erlendum gjaldmiðlum.
26. nóvember - Virðisaukaskattur og fasteignir.
30. nóvember - Nýjar og fyrirhugaðar breytingar á skattalögum.
Endurskoðendum er bent á að námskeiðin veita einingar hjá FLE.
Ný lög um afdráttarskatt af fjármagnstekjum
Með lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem samþykkt voru í júní sl. voru vaxtatekjur sem erlendir aðilar fá frá Íslandi gerðar skattskyldar hér á landi.
Vextir sem gjaldfellu og urðu greiðslukræfir frá og með 1. september 2009 sæta skattlagningu á Íslandi. Hafi hluti vaxta áunnist fyrir 1. september 2009 eru þeir hvorki skattskyldir né staðgreiðsluskyldir.
Vaxtagreiðslur eru staðgreiðsluskyldar og er það hinn íslenski greiðandi vaxtanna sem ber ábyrgð á staðgreiðslunni. Íslenskir stjórnarmenn félaga, sjóða og stofnana, bera óskipta ábyrgð á skattgreiðslum hinna erlendu aðila sem móttaka vaxtagreiðslur. Er því mjög mikilvægt að stjórnarmenn íslenskra félag fylgist vel með að rétt sé staðið að staðgreiðslunni. (Meira)
Uppfærður Skattabæklingur KPMG
Ýmsar skattalagabreytingar hafa orðið á yfirstandandi ári. Af þeim sökum var Skattabæklingur KPMG uppfærður í október sl. Uppfærður Skattabæklingur verður einungis aðgengilegur á rafrænu formi. Uppfærða útgáfu Skattabæklingsins er að finna hér.
Dómur Hæstaréttar frá 24. september 2009 í málinu nr. 678/2008
Í málinu reyndi á heimild stjórnar hlutafélags til að framselja vald sitt til framkvæmdastjóra félagsins. Forsagan er sú að á stjórnarfundi viðkomandi hlutafélags 5. desember 2007 var samþykkt að veita framkvæmdastjóra félagsins umboð til að skuldbinda félagið með kaupum og sölu á verðbréfum og til lántöku í því skyni. Náði umboðið meðal annars til viðskipta með vaxtaskipta- og afleiðusamninga. (Meira)
Fjármálaeftirlitið og ríkisskattstjóri gera með sér samstarfssamning
Fjármálaeftirlitið (FME) og ríkisskattstjóri (RSK) hafa gert með sér samning um að efla samvinnu sín á milli eftir því sem lög leyfa. Í samstarfssamningnum felst meðal annars að FME fær aðgang að vissum skrám RSK. (Meira)

