Forsíða skattatíðinda

36. tbl. Skattatíðinda KPMG

Um þessar mundir eiga Skattatíðindi KPMG 4 ára afmæli en fyrsta tölublað kom út í janúar 2005. Skattatíðindi koma nú út í 36. skipti. Útlit Skattatíðinda hefur tekið litlum breytingum frá því útgáfan hófst. Hefur framsetningu miðilsins nú verið breytt til muna líkt og sjá má. Í stað þess að Skattatíðindi birtist lesendum sem PDF skjal, verður viðmótið hér eftir aðgengilegra og framsetningin nær því sem við þekkjum af vefmiðlum.

Efnistök Skattatíðinda hafa verið með áþekkum hætti frá upphafi og einkum spannað ýmsa þætti er tengjast skattlagningu einstaklinga og fyrirtækja á Íslandi á breiðum grunni. Verður haldið áfram að mestu leyti með svipuð efnistök og áður að því viðbættu að sjónum verður í auknu mæli beint út fyrir landsteinana. Verður fanga einkum leitað til Evrópu í því efni.

Er það von skattasvið KPMG að breytingin á Skattatíðindum sé til bóta og leggist vel í lesendur.


Skattframtöl einstaklinga 2009

Þann 1. mars var opnað fyrir vefframtal 2009 á vefsíðunni skattur.is. Lokadagur almenns frests fyrir einstaklingsframtöl er 23. mars. Þó er hægt að sækja um framlengdan frest til að skila framtali með einföldum hætti á skattur.is.

Meðal hlutverka skattasviðs KPMG er að sjá um skattframtalsgerð fyrir einstaklinga. Leita má upplýsinga vegna þessa hjá skattasviði KPMG með því að senda tölvupóst á netfangið skattframtal@kpmg.is.

Milliverðlagning

Í janúar birtist grein um milliverðlagningu (e. transfer pricing) eftir Ágúst Karl Guðmundsson, lögfræðing á skattasviði KPMG, í fræðitímaritinu International Transfer Pricing Journal. Greinin ber heitið Lost in transfer pricing: the pitfalls of EU transfer pricing documentation. Heimasíðu International Transfer Pricing Journal má finna hér.


Góð þátttaka á skattadegi KPMG 2009

Árlegur skattadagur KPMG var haldinn 22. og 23. janúar sl. Var þátttaka afar góð, en vel á fjórða hundruð gestir hlýddu á sérfræðinga skattasviðs og gest frá ríkisskattstjóra fjalla um ýmis málefni líðandi stundar.

Hægt er að nálgast glærur frá skattadeginum á heimasíðu KPMG á vefslóðinni www.kpmg.is.

Endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu manna við húsnæði

Hefur þú innt af hendi greiðslur til erlendra aðila?

Endurskoðun danskra á skattlagningu

Eru fyrirséðar lækkanir á virðisaukaskatti innan aðildarríkja ESB?

Breytingar á skattlagningu í Bandaríkjunum

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland