Ársreikningar í erlendum gjaldmiðlum

Eftir Alexander G. Eðvardsson, yfirmann skattasviðs

Myntstaflar

Nokkurs misskilnings virðist hafa gætt í opinberri umfjöllun um þá ákvörðun stjórnenda Straums- Burðaráss að færa bókhald félagsins og birta reikningsskil þess í evrum frá 1. janúar 2007. Umræðan hefur verið á þann veg að ákvörðunin muni hafa áhrif á daglegan rekstur og ákvarðanir um fjárfestingastefnu bankans. Svo virðist sem þeir sem tjáð hafa sig um málið telji að bankinn muni hverfa frá því að eiga viðskipti í krónum en eiga þau þess í stað í evrum í framhaldi af breytingunni. Slíkt er að sjálfsögðu ekki rétt þar sem sú ákvörðun að birta reikningsskil Straums-Burðaráss í evrum er einungis staðfesting á núverandi fjárhagslegri skipan mála hjá félaginu. Félögum er ekki veitt heimild til að færa bókhald og birta reikningsskil í erlendum gjaldmiðlum nema viðkomandi gjaldmiðill sé svonefndur starfrækslugjaldmiðill félags þegar heimildin er veitt.

Með breytingum sem gerðar voru á lögum um ársreikninga á árinu 2002 var félögum heimilað, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að færa bókhald og birta reikningsskil sín í erlendum gjaldmiðlum. Skilyrðin í ársreikningalögum eru þessi:

  • Félög sem eru með meginstarfsemi sína erlendis eða eru hluti erlendrar samstæðu þar sem starfrækslugjaldmiðill er annar en íslensk króna.
  • Félög sem eiga erlend dótturfélög eða hlutdeild í erlendum félögum og meginviðskipti eru við þessi félög.
  • Félög sem hafa meginstarfsemi sína hér á landi en eru með verulegan hluta tekna sinna frá erlendum aðilum í öðrum gjaldmiðli en íslenskum krónum, enda teljist hann vera starfrækslugjaldmiðill samkvæmt settri reikningsskilareglu.
  • Félög sem hafa verulegan hluta fjárfestinga sinna í erlendum fjárfestingarvörum og skuldir þeim tengdar í erlendum gjaldmiðli og þau eru yfir tilteknum stærðarmörkum.

Af framangreindri upptalningu má vera ljóst að sú ákvörðun stjórnenda Straums-Burðaráss að færa bókhald félagsins og birta reikningsskil þess í evrum er í raun staðfesting á núverandi stöðu en ekki yfirlýsing um að bankinn sé að hætta að eiga viðskipti með íslenskar krónur eða breyta eignasafni sínu úr krónum í evrur.

Það er mat stjórnenda Straums-Burðaráss að framsetning á reikningsskilum bankans í evrum lýsi betur rekstrarárangri hans en framsetning í krónum. Hætt er við að sveiflur í gengi krónunnar hafi það mikil áhrif að ársreikningur sem birtur er í krónum lýsi ekki með ásættanlegum hætti "raunverulegum" rekstrarárangri bankans.

Þessi ákvörðun sem slík er ekki til þess fallin að veikja stöðu krónunnar eða minnka tiltrú viðskiptalífsins á henni. Hér er einungis um að ræða ákvörðun stjórnenda eins félags um að framsetning ársreiknings í evrum lýsi betur raunverulegum rekstrarárangri félagsins en ef krónan er notuð sem mælieining. Þrátt fyrir að Straumur-Burðarás sé fjármálafyrirtæki breytir sú staðreynd ekki því að verulegur hluti af umsvifum bankans er tengdur evrum og því rökrétt að reikningsskil hans séu sett fram í þeim gjaldmiðli. Það eru aðgerðir fjármálafyrirtækja á peningamarkaði sem geta haft áhrif á gengi krónunnar en ekki hvort þau velja að færa bókhald og birta ársreikninga í krónum eða öðrum gjaldmiðlum.

Nokkur fjöldi félaga birtir nú þegar reikningsskil sín í erlendum gjaldmiðlum og eru þar á meðal nokkur af stærstu félögum landsins. Engin umræða hefur farið fram um að reikningsskil þessara félaga hafi veikt gengi krónunnar.

 

 



 


KPMG Iceland