Um KPMG
KPMG er alþjóðlegt net fyrirtækja sem veita sérfræðiþjónustu með það að markmiði að breyta þekkingu í verðmæti til hagsbóta fyrir viðskiptavini sína, starfsfólk og samfélagið.
Á heimsvísu starfa meira en 135 þúsund manns hjá KPMG í yfir 140 löndum. Samstarf þessa stóra hóps byggir á reglubundnu gæðaeftirliti og aðgangi að upplýsingum sem tryggir fagþekkingu í heimsklassa og sömu þjónustu í öllum heimshornum.
Á Íslandi spannar saga KPMG hf. rúmlega 30 ár og félagið varð aðili að alþjóðlega KPMG netinu árið 1985.
Á Íslandi starfa um 230 manns hjá KPMG. Hjá félaginu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á öllum sviðum viðskipta. Löggiltir endurskoðendur félagsins eru rúmlega 50, þar starfa um 10 lögfræðingar og fjöldi viðskiptafræðinga auk annars fagfólks.
Höfuðstöðvar félagsins eru að Borgartúni 27 í Reykjavík, en félagið rekur einnig starfsstöðvar í fimm öðrum sveitarfélögum. Opnar skrifstofur eru nú á Sauðárkróki, Akureyri, Dalvík, Egilsstöðum og Selfossi.
KPMG á Íslandi er skipt í þrjú svið. Það eru endurskoðunarsvið, skattasvið og fyrirtækjasvið. Framkvæmdastjóri félagsins er Sigurður Jónsson en stjórnarformaður er Jón S. Helgason. Forstöðumenn ofangreindra sviða eru Auður Þórisdóttir, Alexander Eðvardsson og H. Ágúst Jóhannesson.
Megintilgangur KPMG á Íslandi er að veita fyrirtækjum og einstaklingum á Íslandi sérhæfða þjónustu á sviði endurskoðunar og ráðgjafar sem grundvallast á áreiðanleika, ítrustu fagmennsku og öryggi. Vel þjálfað starfsfólk er opið fyrir innlendum og erlendum straumum nýrrar þekkingar og byggir allt sitt starf á að viðskiptavinurinn sé í fyrirrúmi.
KPMG hf.
Borgartúni 27
105 Reykjavík
Sími: 545 6000
Netfang: kpmg@kpmg.is
