KPMG í hnotskurn

KPMG hf. var stofnað 4. september 1975. Samkvæmt samþykktum félagsins er tilgangur þess að annast hvers konar endurskoðunar- og ráðgjafarþjónustu. Hluthafar í félaginu eru 31 og eru allir starfandi í félaginu.
Stjórnskipulag félagsins er tilgreint í samþykktum þess og samkvæmt fara eftirfarandi með stjórn KPMG hf.:
- Hluthafafundir.
- Stjórn félagsins.
- Framkvæmdastjóri.
Stjórn félagsins er skipuð fimm mönnum og eru þeir allir hluthafar. Stjórnina skipa eftirfarandi:
- Jón S. Helgason, stjórnarformaður
- Anna Þórðardóttir
- Benedikt K. Magnusson
- Sigurþór Ch. Guðmundsson
- Símon Á. Gunnarsson
Framkvæmdastjóri félagsins, Sigurður Jónsson, er hluthafi en er ekki í stjórn félagsins.
KPMG á Íslandi er skipt í þrjú svið. Þau eru:
Endurskoðunarsvið, forstöðumaður er Auður Þórisdóttir. Innan endurskoðunarsviðs starfar uppgjörs- og bókhaldssvið sem Eyvindur Albertsson veitir forstöðu.
Fyrirtækjasvið, forstöðumaður er H. Ágúst Jóhannesson.
Skattasvið, forstöðumaður er Alexander Eðvardsson.
Samkvæmt lögum nr. 79/2008 um endurskoðendur eiga endurskoðunarfyrirtæki sem hafa með höndum endurskoðun eininga tengdum almannahagsmunum að birta árlega skýrslu um gagnsæi. Þessa skýrslu má nálgast hér (pdf).
