Gæðaeftirlit og óhæði

Opin bók

KPMG á Íslandi starfar samkvæmt gæðakröfum, þar á meðal kröfum um óhæði, sem byggðar eru á stöðlum alþjóðlegra samtaka endurskoðenda (International Federation of Accountants – IFAC). Að því er gæðaeftirlit varðar starfar KPMG á Íslandi í samræmi við kerfi sem KPMG International mælir fyrir um og er í samræmi við grundvallarkröfur alþjóðlegra staðla (International Standard of Quality Control – ISQC). Þær grundvallarkröfur sem gilda um starfsemi KPMG ná til eftirfarandi þátta:

  • Forystu og gæðastjórnunar.
  • Óhæðis og siðferðis.
  • Samþykkis viðskiptavina og verkefna og áframhaldandi viðskipta.
  • Framkvæmdar einstakra verkefna.
  • Starfsmannamála.
  • Eftirlits og framkvæmdar laga og reglna.

KPMG lítur svo á að áhættu- og gæðastjórnun sé á ábyrgð sérhvers eiganda og starfsmanns félagsins. Eðlislægur þáttur í þessari ábyrgð er nauðsyn þess að skilja og fylgja af árvekni reglum sem KPMG International setur og einnig reglum sem KPMG á Íslandi setur í samræmi við íslensk lög og reglur.

Endurmenntunarstefna KPMG

Fræðsla og símenntun er einn af hornsteinum í starfssemi KPMG. Gert er ráð fyrir því að starfsmenn nýti að lágmarki 120 klukkustundir til þekkingaröflunar á hverju þriggja ára tímabili. Hjá KPMG er lögð rík áhersla á hagnýta og faglega þekkingu sem eykur verðmæti þeirrar þjónustu sem félagið veitir. Gæðakröfur til fræðslustarfs eru því miklar og gert er ráð fyrir því að fræðslan sé arðbær fjárfesting fyrir félagið og þátttakendur. Starfsmenn bera ásamt stjórnendum ábyrgð á sinni endurmenntun. Hverjum og einum starfsmanni ber að fylgjast með og meta reglulega eigin þörf fyrir endurmenntun og hafa frumkvæði að þekkingaröflun sinni. Öll fræðsla skal vera skráð og staðfestanleg. Löggiltir endurskoðendur sem vinna hjá KPMG ber einnig að sinna endurmenntunarskyldu sinni samkvæmt þeim reglum sem um það fjalla.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 


KPMG Iceland